Hugarflug í LHÍ - Þróun sjálfbærs samfélags
- Staðsetning
- Laugarnesvegur 91
- Hefst
- Föstudagur 19. febrúar 2016 16:00
- Lýkur
- Föstudagur 19. febrúar 2016 17:30
Tengt efni
Hugarflug í LHÍ - Þróun sjálfbærs samfélags
Málstofa um þróun sjálfbærs samfélags
Föstudaginn 19. febrúar kl. 16:00-17:00 stýra þær Ásthildur B. Jónsdóttir og Kristín Ísleifsdóttir umræðum um þróun sjálfbærs samfélags en þær eru meðlimir í rannsóknahópi um menntun til sjálfbærni, sem starfar undir hatti Rannsóknastofu í listkennslufræðum við Listaháskólann.
Í hringborðsumræðunum munu Allyson Macdonald, Ari Trausti Guðmundsson, Árni Stefán Árnason, Bjartmar Alexandersson, Guðrún Tryggvadóttir, Jóhann Björnsson, Kristján Leósson, Margrét S. Eymundardóttir, Ólöf Ágústína Stefánsdóttir, Ósk Vilhjálmsdóttir, Sigurður Björnsson og Tinna Gunnarsdóttir ræða við þátttakendur um hvað þau telja mikilvægt að leggja áherslu á í þróun sjálfbærs samfélags.
Málstofan um þróun sjálfbærs samfélags er ein af 18 málstofum, gjörningum, vinnustofum og sameiginlegum umræðum Hugarflugs sem á sér stað dagana 18.-19. febrúar í húsnæði listkennsludeildar og myndlistardeildar, Laugarnesvegi 91.
Hugarflug er árleg ráðstefna Listaháskóla Íslands og verður nú haldin í fimmta sinn. Markmið ráðstefnunnar er að skapa vettvang fyrir faglega og gagnrýna umræðu um þekkingarsköpun með áherslu á listrannsóknir og þann fjölbreytileika sem einkennir nálgun, aðferðir, efnistök og miðlun á sviðinu. Í ár er dagskráin sérlega vegleg, en
Hugarflug býður upp á tækifæri til tengslamyndunar í akademísku samhengi hinna skapandi greina og leiðir saman starfsmenn skólans, nemendur, stundakennarar og starfandi listamenn, hönnuði, sýningarstjóra, listræna stjórnendur og fræðafólk á sviði menningar, lista og menntunar.
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Hugarflug í LHÍ - Þróun sjálfbærs samfélags “, Náttúran.is: 11. febrúar 2016 URL: http://nature.is/d/2016/02/11/hugarflug-i-lhi-throun-sjalfbaers-samfelags/ [Skoðað:29. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: