Frestur til að skila umsögnum við frumvarp um breytingu á ýmsum lögum er varða meðhöndlun úrgangs rennur út
- Staðsetning
- Óstaðsett
- Hefst
- Mánudagur 25. janúar 2016 00:00
- Lýkur
- Föstudagur 05. febrúar 2016 23:50
Tengt efni
Frumvarp um breytingu á ýmsum lögum er varða meðhöndlun úrgangs í kynningu
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að frumvarpi til breytinga á lögum um meðhöndlun úrgangs, lögum um eftirlit með skipum og lögum um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur.
Meginefni frumvarpsins eru innleiðingar ýmissa Evrópugerða er varða úrgangsmál. Auk þess eru lagðar til nokkrar aðrar breytingar á lögunum er varða m.a. opinberar birtingar á skýrslum rekstraraðila, kæruheimild í lögum um meðhöndlun úrgangs til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, heimild til handa Umhverfisstofnun til að leggja á stjórnvaldssektir vegna brota á lögum um meðhöndlun úrgangs og breytingar er lúta að einnota umbúðum fyrir drykkjarvörur þar sem heimiluð er álagning umsýsluþóknunar á ál.
Umsögnum um frumvarpið skal skilað fyrir 5. febrúar nk. á netfangið postur@uar.is eða í bréfpósti, á umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík.
Birt:
Tilvitnun:
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið „Frumvarp um breytingu á ýmsum lögum er varða meðhöndlun úrgangs í kynningu“, Náttúran.is: 26. janúar 2016 URL: http://nature.is/d/2016/01/25/frumvarp-um-breytingu-ymsum-logum-er-varda-medhond/ [Skoðað:29. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 25. janúar 2016


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: