Áskoranir í loftslagsmálum
- Staðsetning
- Suðurlandsbraut 2
- Hefst
- Miðvikudagur 27. janúar 2016 08:30
- Lýkur
- Miðvikudagur 27. janúar 2016 10:30
Tengt efni
Áskoranir í loftslagsmálum – Morgunverðarfundur
Loftslagsmál eru ein af stærstu áskorunum sem við stöndum frammi fyrir. Fyrirtæki gegna þar mikilvægu hlutverki annars vegar með því að minnka losun gróðurhúsalofttegunda frá starfsemi sinni og hins vegar að þróa vörur og þjónustu þannig að aðrir nái árangri.
Áskoranir fyrirtækja verða ræddar á opnum morgunverðarfundi Samtaka iðnaðarins og CleanTech Iceland 27. janúar kl. 8.30 – 10.30 á Hilton Reykjavík Nordica.
Dagskrá:
- Tækifæri til atvinnusköpunar - Bryndís Skúladóttir, forstöðumaður framleiðslu- og matvælasviðs hjá SI
- Learnings from COP21 - KC Tran, framkvæmdastjóri Carbon Recycling International
- Tæknilausnir í bátum - Högni Bergþórsson, tæknilegur framkvæmdastjóri hjá Trefjum
- Vöktun og mælingar - Þorsteinn Svanur Jónsson, viðskipta- og þróunarstjóri ARK Technology
- Vistvænar byggingar - Nanna Karólína Pétursdóttir, byggingatæknifræðingur Verkís
- Úrgangur og endurvinnsla - Helgi Lárusson, framkvæmdastjóri Endurvinnslunnar
Fundarstjóri : Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
Birt:
Tilvitnun:
Samtök iðnaðarins „Áskoranir í loftslagsmálum – Morgunverðarfundur“, Náttúran.is: 25. janúar 2016 URL: http://nature.is/d/2016/01/25/askoranir-i-loftslagsmalum-morgunverdarfundur/ [Skoðað:15. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: