Vistvæn hugsun og umhverfisvottun bygginga
- Staðsetning
- Ofanleiti 2
- Hefst
- Fimmtudagur 14. janúar 2016 13:00
- Lýkur
- Fimmtudagur 14. janúar 2016 13:00
Tengt efni
Vistvæn hugsun og umhverfisvottun bygginga
Þann 14. janúar næstkomandi mun Vistbyggðarráð standa fyrir námskeiði þar sem fjallað verður um hvernig hægt er að auka gæði bygginga, draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum, tryggja vellíðan og öryggi um leið og dregið er úr heildakostnaði bygginga á öllum líftíma hennar.
Þetta hálfs dags námskeið ætti að gagnast öllum þeim sem hafa áhuga á að kynna sér þess mál frekar og stuðla að bættu umhverfi.
Staðreyndin er sú að um alla heim er nú farið að gera mun ríkari kröfur um umhverfisgæði í byggingariðnaði. Hér á landi hafa opinberir framkvæmdaaðilar eins og Framkvæmdasýsla ríkisins og Reykjavíkurborg ásamt fleirum teki þessi skref og er þetta námskeið tilvalið tækifæri til þess að bæta þekkingu sína á vistvottun bygginga.
Á námskeiðinu verður sérstaklega fjallað um breska vistvottunarkerfið BREEAM, en það er það kerfi sem notast hefur verið við hér á landi undanfarin ár.
Námskeiðið gefur þó ekki réttindi til vottunar, heldur er ætlunin fyrst og fremst að gefa innsýn í þetta ferli, fara yfir helstu áherslur og draga lærdóm af þeim verkefnum sem þegar hefur verið unnið að hérlendis.
Nánar um námskeiðiði
Námskeiðið skiptist í þrjá hluta: I) Vistvæn hugsun og hönnun bygginga, II) Breeam vottunarkerfið og III) Notkun Breeam á Íslandi
13:00-13:30 (0,5klst)
I) Vistvæn hugsun og hönnun bygginga:
- Vistvæn eða sjálfbær bygging?
- Hverjir eru kostir vistvænna bygginga?
- Kostnaður / ávinningur við vistvæna vottun verkefna
13:30-14:00 (0,5 klst)
II) Breeam vottunarkerfið
- Hvað er BREEAM?
- Af hverju Breeam en ekki annað kerfi?
- Hugmyndafræðin og helstu áherslur
- Bream fyrir bæði byggingar og skipulag
- Helstu útgáfur af kerfinu
14:30-14:40- kaffihlé
14:40-15:30 (50 min)
Handbókin
- BREEAM, handbókin og almennar leiðbeiningar
- Farið yfir 9 efnisflokka og dregið fram það sem við þurfum sérstaklega að skoða í íslensku samhengi.
- Matsstig og mismunandi vægi einstakra þátta.
15:30-16:30 (1 klst)- þarf af 45 mín í verkefnadæmi
III) Notkun BREEAM á Íslandi.
- Af hverju notum við Breeam á Íslandi?
- Ólíkar gerðir verkefna – nokkur dæmi kynnt. (hvert verkefni 15 mín=45 min)
- Áskoranir í ferlinu – hvað höfum við lært og hvað ber að varast. (eitthvað sem er þegar byggt
Vottunarferlið sjálft:
- Hvernig get ég fengið verkefnið mitt vottað
- Hverjir hafa leyfi til að votta byggingar?
- Hvar er hægt að öðlast réttindi til þess?
Staður: Fundasalur Ásbyrgi , Verkís, Ofanleiti 2.
Tími: fimmtudagur 14. janúar kl. 13:00-16:30
Verð: 25.000 (18 þús fyrir aðildafélög/nema, þarf að framvísa skírteini)
(lágmarks fjöldi þátttakanda 15)
Smelltu hér til að skrá þig á námskeiðið.
Birt:
Tilvitnun:
Sigríður Björg Jónsdóttir „Vistvæn hugsun og umhverfisvottun bygginga“, Náttúran.is: 15. desember 2015 URL: http://nature.is/d/2015/12/15/vistvaen-hugsun-og-umhverfisvottun-bygginga/ [Skoðað:28. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: