Ár jarðvegs - Öld umhverfisvitundar - Alda nýrrar hugsunar!
- Staðsetning
- Nauthólsvegur 106
- Hefst
- Miðvikudagur 25. nóvember 2015 08:15
- Lýkur
- Miðvikudagur 25. nóvember 2015 10:00
Tengt efni
Ár jarðvegs - Öld umhverfisvitundar - Alda nýrrar hugsunar!
Miðvikudaginn 25. nóvember kl. 08:15-10:00 verður morgunverðarfundur á Nauthóli í Nauthólsvík undir yfirskriftinni Ár jarðvegs - Öld umhverfisvitundar - Alda nýrrar hugsunar! Jarðvegsvernd gegn loftslagsbreytingum.
Fundurinn er sá síðasti í fundaröð sem Samstarfshópur um Alþjóðlegt ár jarðvegs 2015 hefur staðið fyrir undanfarna mánuði.
Á þessum fundum hefur verið opnað á umræðu um vistkerfi jarðar og tengsl jarðvegsverndar og sjálfbærrar þróunar. Sömuleiðis hvernig Íslendingar geta lagt sitt af mörkum til að draga úr áhrifum loftslagsbreytinga og stuðlað að framgangi nýrra heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.
Framsögur og pallborðsumræður á fundinum í Nauthóli munu taka mið af ofangreindu og fjalla um ábyrgð okkar sem þjóðar. Hvað getum við gert til að bregðast við umhverfisáskorunum nútímans og hvernig hrindum við þeim áformum í framkvæmd?
Opnun
Sveinn Runólfsson, landgræðslustjóri.
DAGSKRÁ
Ávarp - Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra.
Af litlum fræjum í frjórri mold -- Þórunn Pétursdóttir, Landgræðslunni.
Sjálfbærni til framtíðar Ný heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna - Anna Pála Sverrisdóttir, utanríkisráðuneytinu.
„Grunuð um Grósku" - Aukum umhverfisvitund - Kristján Hreinsson, skáld og heimspekingur.
Pallborðsumræður: Hver er ábyrgð okkar? - Umræðustjóri: Bogi Ágústsson, RÚV.
Þátttakendur: Kristín Helga Gunnarsdóttir, Bjartmar Alexandersson, Haukur Ingi Jónasson, Guðrún Pétursdóttir og Ólafur Arnalds.
Fundarstjórar: Hafdís Hanna Ægisdóttir, Landgræðsluskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna, Þröstur Freyr Gylfason, Félagi Sameinuðu þjóðanna.
Þátttökuskráningu þarf að senda á netfangið gudjon@land.is
Birt:
Tilvitnun:
Áskell Þórisson „Ár jarðvegs - Öld umhverfisvitundar - Alda nýrrar hugsunar!“, Náttúran.is: 19. nóvember 2015 URL: http://nature.is/d/2015/11/19/ar-jardvegs-old-umhverfisvitundar-alda-nyrrar-hugs/ [Skoðað:29. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: