Norræn innkaupavika Svansins
- Staðsetning
- Óstaðsett
- Hefst
- Mánudagur 02. nóvember 2015 09:00
- Lýkur
- Fimmtudagur 05. nóvember 2015 10:30
Tengt efni
Norræn innkaupavika Svansins
Vika grænna opinbera innkaupa á Norðurlöndum hófst mánudaginn 2. nóvember. Í Reykjavík er boðið til morgunverðarfunda og ráðstefnu um opinber innkaup auk þess sem norræna umhverfismerkið Svanurinn verður ofarlega á baugi.
Opinber innkaup geta haft talsverð áhrif á framboð og gæði vara og þjónustu enda er talið að þau séu um 20% af vergri landsframleiðslu. Með því að setja umhverfisskilyrði við opinber innkaup er þannig hægt að auka framboð vistvænna vara og þjónustu, ekki bara til opinberra aðila heldur einnig á almennum markaði.
Lög og stefnur íslenska ríkisins endurspegla aukna áherslu á vistvæn opinber innkaup. Í innkaupastefnu ríkisins segir m.a. að við innkaup skuli tekið tillit til umhverfissjónarmiða jafnt sem kostnaðar og gæða. Þetta er einnig undirstrikað í lögum um opinber innkaup og í stefnumörkun stjórnvalda um sjálfbæra þróun í íslensku samfélagi. Í stefnu ríkisins um vistvæn innkaup ríkisins og grænan ríkisrekstur 2013-2016 er fjallað um hvernig samþætta á umhverfissjónarmið góðum innkaupaháttum við innkaup ríkisins og hvernig opinberir aðilar geti gert rekstur sinn grænni með það að markmiði að draga úr umhverfisáhrifum opinberrar starfsemi. Jafnframt er hvatt til nýsköpunar og samkeppni á markaði um leiðir til að minnka álag á umhverfið.
Dagskrá norrænnar innkaupaviku:
2. nóvember - Morgunverðarfundur um Innkaupanetið, félagsskap fyrirtækja í frjálsum atvinnurekstri sem vilja stunda ábyrg, græn innkaup. Allir velkomnir. Nauthóll, kl. 9.00 til 10.30
3. nóvember - Ráðstefna Ríkiskaupa undir yfirskriftinni: „Hvernig við eyðum almannafé skiptir máli. Skyldi nokkuð koma til handalögmála?“ Grand Hótel Reykjavík, kl. 8.30 til 15.30
3. nóvember - Kaupstefna Svansins, þar sem kynntar verða Svansvottaðar vörur og þjónusta. Allir velkomnir. Grand Hótel Reykjavík, kl. 12.00 til 17.00
4. nóvember - Morgunverðarfundur um Græn skref í ríkisrekstri. Reynslusögur frá öðrum stofnunum og skoðað hvernig Umhverfisstofnun gerir hlutina. Allar stofnanir velkomnar. Umhverfisstofnun, Suðurlandsbraut 24, kl. 08.30 til 10.30
5. nóvember - Morgunverðarfundur um markaðssetningu á Svansvottuðum vörum. Allir leyfishafar og birgjar Svansvottaðra vara velkomnir. Nauthóll, kl. 9.00 til 10.30
Birt:
Tilvitnun:
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið „Norræn innkaupavika Svansins“, Náttúran.is: 2. nóvember 2015 URL: http://nature.is/d/2015/11/05/norraen-innkaupavika-svansins/ [Skoðað:20. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 5. nóvember 2015


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: