Máttur matarins
- Staðsetning
- Hótel Natura - Nauthólsvegur 52
- Hefst
- Þriðjudagur 08. apríl 2014 19:30
- Lýkur
- Þriðjudagur 08. apríl 2014 22:00
Tengt efni
Máttur matarins - gott mataræði, betri heilsa, meiri lífsgæði
Máttur matarins er yfirskrift málþings Náttúrulækningafélags Íslands sem haldið verður á Hótel Natura á morgun.
Á málþinginu verður fjallað um hvað í raun gerist þegar við borðum óhollan og hollan mat. Hvað gerir til dæmis íþróttafólk sem vill ná langt í sinni íþrótt? Ragna Ingólfsdóttir, fyrrverandi atvinnumaður í badminton og ólympíufari og Geir Gunnar Markússon, næringafræðingur á heilsustofnun NLFÍ og fundarstjóri á málþinginu komu í Síðdegisútvarpið á Rás 1 í dag.
Hlusta á viðtalið í Síðdegisútvarpinu.
Ljósmynd: Ragna Ingólfsdóttir, mynd fengin að láni á visir.is.
Birt:
Tilvitnun:
Ríkisútvarpið „Máttur matarins - gott mataræði, betri heilsa, meiri lífsgæði“, Náttúran.is: 7. apríl 2014 URL: http://nature.is/d/2014/04/07/mattur-matarins-gott-mataraedi-betri-heilsa-meiri-/ [Skoðað:25. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: