Mold og menntun í Kaffi Loka
- Staðsetning
- Lokastígur 28
- Hefst
- Miðvikudagur 07. október 2015 12:00
- Lýkur
- Miðvikudagur 07. október 2015 13:00
Tengt efni
Mold og menntun! Örfyrirlestraröð fyrir upptekið fólk
Miðvikudaginn 7. október kl. 12:00 - 13:00 verður fjallað um mold og menntun á Kaffi Loka, Skólavörðuholti Í tilefni alþjóðlegs jarðvegsár.
Þrír fyrirlesarar:
- Mold: Lestur og menntun - Ólafur Arnalds, prófessor við LbhÍ
- Reyndu nú að skíta þig ekki út!) - Ester Ýr Jónsdóttir, verkefnisstjóri NaNO
- Þekking – þjálfun – þor - Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðum. Landgræðsluskóla HSþ
Að loknum fyrirtestrum gefst gestum tækifæri á að koma með spurningar eða sínar eigin stuttar hugleiðingar um viðfangsefni dagsins.
Birt:
Tilvitnun:
Áskell Þórisson „Mold og menntun! Örfyrirlestraröð fyrir upptekið fólk“, Náttúran.is: 5. október 2015 URL: http://nature.is/d/2015/10/05/mold-og-menntun-orfyrirlestrarod-fyrir-upptekid-fo/ [Skoðað:28. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: