Menntun til sjálfbærni - samráðsfundur
- Staðsetning
- Laugalækjarskóli Leirulækur 2
- Hefst
- Miðvikudagur 16. september 2015 15:00
- Lýkur
- Miðvikudagur 16. september 2015 16:30
Tengt efni
Samráðsfundur um stefnu SFS í menntun til sjálfbærni
Starfshópur um stefnumörkun skóla- og frístundasviðs um menntun til sjálfbærni boðar til opins samráðsfundar um stefnumörkunina. Fundurinn verður haldinn þ. 13. september frá kl. 15:00 - 16:30 í Laugalækjaskóla
Dagskrá:
- Helgi Grímsson, verðandi sviðsstjóri SFS, opnar fundinn.
- Helena W. Óladóttir, formaður starfshópsins, verður með stutta kynningu á fyrirhugaðri stefnumörkun.
- Heimskaffi þar sem þátttakendum gefst kostur á að leggja sitt af mörkum við mótun stefnunnar.
Sjálfbærni er einn af sex grunnþáttum í menntastefnu þjóðarinnar. Leiðarljós menntunar til sjálfbærni er að hvetja einstaklinginn til að taka afstöðu, bregðast við og vera virkur þátttakandi í samfélaginu. Sumir vilja orða það svo, að megininntak menntunar til sjálfbærni sé sameiginleg ábyrgð okkar á velferð einstaklingsins, samfélagsins og umhverfisins.
Boðaður fundur er annar tveggja sem haldnir verða í haust í þessum tilgangi en markmið þeirra er að kalla eftir hugmyndum, tillögum og væntingum þátttakenda inn í stefnumörkunina. Starfsfólk skóla- og frístundasviðs er sérstaklega hvatt til að mæta og taka þátt í mótun stefnunnar.
Hlutverk ofangreinds starfshóps er að móta stefnu sviðsins í menntun til sjálfbærni í leikskólum, grunnskólum, félagsmiðstöðvum, frístundaheimilum, frístundaklúbbum og skólahljómsveitum. Hópurinn vinnur í samræmi við fyrirmæli aðalnámskráa leikskóla og grunnskóla, starfsskrár frístundamiðstöðva, stefnu um skóla án aðgreiningar og aðrar stefnur Reykjavíkurborgar sem snerta umfjöllunarefnið.
Birt:
Tilvitnun:
Helena Óladóttir „Samráðsfundur um stefnu SFS í menntun til sjálfbærni“, Náttúran.is: 15. september 2015 URL: http://nature.is/d/2015/09/15/samradsfundur-um-stefnu-sfs-i-menntun-til-sjalfbae/ [Skoðað:30. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: