Óskað eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins
- Staðsetning
- Óstaðsett
- Hefst
- Föstudagur 14. ágúst 2015 00:00
- Lýkur
- Miðvikudagur 09. september 2015 23:59
- Lýsing
Tilnefningarfrestur til 9. sept. 2015.
Tengt efni
Óskað eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins
Umhverfisverðlaun atvinnulífsins verða afhent miðvikudaginn 30. september fyrirtækjum sem staðið hafa sig vel í umhverfismálum. Athöfnin fer fram á Hilton Reykjavík Nordica á Umhverfisdegi atvinnulífsins. Óskað er eftir tilnefningum fyrir 9. september. Umhverfisfyrirtæki ársins 2015 verður útnefnt auk þess sem Framtak ársins 2015 í umhverfismálum verður verðlaunað.
Dómnefnd velur úr tilnefningum og mun meðal annars skoða eftirfarandi þætti:
Umhverfisfyrirtæki ársins
- Hefur innleitt umhverfisstjórnunarkerfi
- Hefur aflað viðurkenninga fyrir starfsemina/afurðirnar
- Hefur sjálfbæra nýtingu í stefnu sinni
- Hefur dregið úr úrgangi og nýtir aðföng vel
- Vinnuumhverfi öruggt
- Fyrir liggur áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað
- Gengur lengra en lög og reglur segja til um til að draga úr áhrifum starfseminnar á umhverfið
- Framtak ársins
Hefur efnt til athyglisverðs átaks til að draga úr umhverfisáhrifum af starfsemi sinni
Hefur komi fram með nýjung – nýja vöru,þjónustu eða aðferð – sem hefur jákvæð umhverfisáhrif og gagnast víða.
Tilnefningar til umhverfisverðlauna atvinnulífsins sendist með tölvupósti á sa@sa.is merkt „Tilnefning til umhverfisverðlauna atvinnulífsins“ eigi síðar en 9. september.
Að Umhverfisdegi atvinnulífsins standa Samtök atvinnulífsins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu.
Að Umhverfisdegi atvinnulífsins standa Samtök atvinnulífsins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu.
Birt:
Tilvitnun:
Samtök atvinnulífsins „Óskað eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins“, Náttúran.is: 14. ágúst 2015 URL: http://nature.is/d/2015/08/14/oskad-eftir-tilnefningum-til-umhverfisverdlauna-at/ [Skoðað:15. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: