Síðasti dagur til að senda inn tilnefningar til Náttúruverndarviðurkenningar Sigríðar í Brattholti
- Staðsetning
- Óstaðsett
- Hefst
- Sunnudagur 16. ágúst 2015 00:00
- Lýkur
- Sunnudagur 16. ágúst 2015 23:59
Tengt efni
Óskað eftir tilnefningum til verðlauna á Degi íslenskrar náttúru
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsir eftir tilnefningum til tvennra verðlauna sem afhent verða á Degi íslenskrar náttúru, 16. september næstkomandi. Annars vegar er um að ræða Fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og hins vegar Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti.
Fjölmiðlaverðlaunum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins er ætlað að hvetja til hverskyns umfjöllunar um íslenska náttúru, hvort heldur er í því skyni að vekja athygli á einstakri náttúru landsins eða benda á þær ógnir sem steðja að íslenskri náttúru og mikilvægi þess að varðveita hana og vernda til framtíðar.
Verðlaunin verða veitt fjölmiðli, ritstjórn, blaða- eða fréttamanni, dagskrárgerðarfólki eða ljósmyndara sem hafa skarað fram úr með umfjöllun sinni um íslenska náttúru. Til greina koma einstök verkefni eða heildarumfjöllun um íslenska náttúru.
Þá verður Náttúruverndarviðurkenning Sigríðar í Brattholti veitt einstaklingi sem hefur unnið markvert starf á sviði náttúruverndar. Sigríður Tómasdóttir, fæddist 24. febrúar 1871 í Brattholti. Sigríður var baráttukona og náttúruverndarsinni sem lagði mikið á sig í baráttu gegn virkjun Gullfoss. Hún var því brautryðjandi á sviði náttúruverndarmála hér á landi og hefur æ síðan verið íslenskum náttúruverndarsinnum fyrirmynd.
Óskað er eftir tilnefningum til beggja viðurkenninga í síðasta lagi 16. ágúst 2015. Tilnefningar með rökstuðningi sendist umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík, eða á netfangið postur@uar.is
Birt:
Tilvitnun:
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið „Óskað eftir tilnefningum til verðlauna á Degi íslenskrar náttúru“, Náttúran.is: 7. ágúst 2015 URL: http://nature.is/d/2015/06/15/oskad-eftir-tilnefningum-til-verdlauna-degi-islens/ [Skoðað:29. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 15. júní 2015
breytt: 7. ágúst 2015


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: