40 ára afmæli friðlýsingar friðlandsins á Hornströndum
- Staðsetning
- Aðalstræti 7
- Hefst
- Föstudagur 12. júní 2015 10:00
- Lýkur
- Föstudagur 12. júní 2015 12:45
Tengt efni
Málþing í tilefni 40 ára afmælis friðlýsingar friðlandsins á Hornströndum
40 ára afmælisdagskrá friðlandsins á Hornströndum
Föstudaginn 12. Júní kl. 10:00 -13:00, í sal Edinborgarhússins, Ísafirði
Umhverfisstofnun í samvinnu við Landeigendafélag Sléttu- og Grunnavíkurhrepps, Ísafjarðarbæ og hagsmunaaðila heldur opið málþing til að fagna 40 ára afmæli friðlandsins á Hornströndum.
Dagskrá:
10:00 Afmælisfundur settur - Fundarstjóri Jón Smári Jónsson, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, umsjónarmaður friðlandsins á Hornströndum
10:05 Ávarp - Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar
10:15 Ávarp, þróun friðlýsingarskilmála - Guðríður Þorvarðardóttir, sérfræðingur hjá Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu
10:25 Friðlandið á Hornströndum, staða og flokkun - Jón Björnsson, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun
10:35 Refir á Hornströndum - Ester Rut Unnsteinsdóttir, spendýravistfræðingur, Náttúrufræðistofnun Íslands
10:55 Lífríki friðlandsins, rannsóknir innan friðlandsins á Hornströndum - Böðvar Þórisson, líffræðingur, Náttúrustofa Vestfjarða
11:15 Kaffi og kleinur
11:45 Náttúruferðamennska í friðlandinu á Hornströndum - Sigurður Jónsson, Aurora Arktika
12:00 Væntingar heimamanna til friðlandsins á Hornströndum - Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar
12:15 Landeigandi í friðlandi - Ingvi Stígsson, fulltrúi Landeigendafélags Sléttu- og Grunnavíkurhrepps
12:30 Minningar frá lífinu í friðlandinu - Matthildur G. Guðmundsdóttir, Látrum Aðalvík
12:45 Umræður
Allir velkomnir og aðgangur er ókeypis
Áhugasamir eru beðnir um að skrá sig á málþingið með því senda erindi á jon.jonsson@umhverfisstofnun.is
Birt:
Tilvitnun:
Umhverfisstofnun „Málþing í tilefni 40 ára afmælis friðlýsingar friðlandsins á Hornströndum“, Náttúran.is: 11. júní 2015 URL: http://nature.is/d/2015/06/11/malthing-i-tilefni-40-ara-afmaelis-fridlysingar-fr/ [Skoðað:27. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: