Sýning kvikmyndarinnar Eitt kíló af plasti fyrir þrjú kíló af fiski
- Staðsetning
- Hverfisgata 54
- Hefst
- Mánudagur 08. júní 2015 20:00
- Lýkur
- Mánudagur 08. júní 2015 22:00
Tengt efni
Eitt kíló af plasti fyrir þrjú kíló af fiski
Sameinuðu þjóðirnar og Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi taka höndum saman um umræður og sýningu kvikmyndar um plastmengun í sjónum.
70 milljónum plastpoka er hent hér á landi á hverju ári og má gera ráð fyrir að verulegur hluti þeirra lendi fyrr eða síðar í sjónum. Að meðaltali er hver plastpoki notaður einu sinni í 25 mínútur en það getur tekið allt að fimm hundruð ár fyrir plastið að brotna algjörlega niður.
Plastmengun í sjónum er efni klukkustundarlangrar heimildarmyndar, Plaststrendur (Plastic shores) sem verður sýnd í Bíó Paradís á alþjóðlegum degi hafsins, 8. júní klukkan átta, og er aðgangur ókeypis. Umræður verða á eftir myndinni með þátttöku meðal Egils Helgasonar, sjónvarpsmanns, Hrannar Ólínu Jörundsdóttur, doktors í umhverfisefnafræði og verkefnisstjóra hjá MATÍS, Karenar Kjartansdóttur, upplýsingafulltrúa Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og Árna Snævarr, upplýsingafulltrúa Sameinuðu þjóðanna.
Umhverfisspjöll af völdum plastmengunar eru gríðarleg. Við Norðursjó finnst plast í maga 94% fugla. Búast má við að í höfunum sé nú um eitt kíló af plasti fyrir hver þrjú kíló af fiski og óumflýjanlega mun eitthvað af þessu enda á okkar diski. Plastagnir geta fundið sér leið inn í vefi líkamans.
Í landsáætlun um meðhöndlun úrgangs á Íslandi fyrir árin 2013–2024 kemur fram að ætla megi að um 70 milljónum plastpoka sé fleygt á hverju ári hér á landi en það eru um 1.120 tonn og til þess að framleiða þennan fjölda poka þarf um 2.240 tonn af olíu. En plast virðir hvorki landamæri né lögsögu ríkja og okkur stafar ekki síður hætta af plastmengun annara ríkja en okkar eigin. Talið er að árlega endi átta milljarðar plastpoka í ruslinu í Evrópu sem hefur í för með sér alvarlegar afleiðingar fyrir lífríkið. Hafstraumar hafa smalað plastögnum úr plastpokum og ýmsu öðru í gríðarstóra fláka sem hringsnúast á Kyrrahafi, Atlantshafi og Indlandshafi.
Evrópuþingið hefur nýverið samþykkt harðar aðgerðir sem miða að því að minnka notkun þunnra plastpoka sem valda mestri mengun, ýmist með banni eða álagningu gjalda. Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Umhverfisráðuneytisins segir að þetta falli undir málefnasvið EES samningsins og því muni breytingar á þessari löggjöf hafa áhrif hér heima en útfærslan er í höndum einstakra ríkja.
UNRIC, Upplýsingaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna og Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) standa að sýningu myndarinnar og er aðgangur sem fyrr segir ókeypis.
Birt:
Tilvitnun:
Árni Finnsson „Eitt kíló af plasti fyrir þrjú kíló af fiski“, Náttúran.is: 5. júní 2015 URL: http://nature.is/d/2015/06/05/eitt-kilo-af-plasti-fyrir-thrju-kilo-af-fiski/ [Skoðað:30. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: