Fardagakálinu fagnað á Fardögum
- Staðsetning
- Laugarnestangi 65
- Hefst
- Laugardagur 06. júní 2015 14:00
- Lýkur
- Laugardagur 06. júní 2015 17:00
Tengt efni
Fardagakálinu fagnað á Fardögum
Fögnuður á fardögum er nú haldið í þriðja sinn og er óður til fardagakálsins sem er betur þekkt sem njóli.
Fardagakálið er falleg jurt sem hefur fengið slæmt orð á sig vegna þess hvessu harðgerð og öflug hún er og hversu vel hún höndlar íslenskar aðstæður.
Jurtin er bæði bragðgóð og einstaklega næringarrík og var flutt inn til átu á 18 öld til að sporna gegn skyrbjúgum sem háði Íslendingum mjög þegar þeir komu undan vetri.
Félagsskapurinn Góðgresi eru einstaklega hrifin af þessari jurt og langar að fá sem flesta til að bæta henni inn í mataræði sitt. Þess vegna bjóða þau ykkur að koma og njóta jurtarinnar með þeim á ýmsan hátt. Þau hafa fengið til liðs við sig fríðan flokk af listamönnum sem ætla að heiðra jurtina hver á sinn hátt.
Fögnuðurinn verður haldinn við bústað Hrafns Gunnlaugssonar í Laugarnesi og hefst laugardaginn 6. júní kl. 14:00.
Birt:
Tilvitnun:
Góðgresi „Fardagakálinu fagnað á Fardögum“, Náttúran.is: 3. júní 2015 URL: http://nature.is/d/2015/06/03/fardagakalinu-fagnad-fardogum/ [Skoðað:24. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: