Er vistferilhugsun almenn í íslenskum byggingariðnaði?
- Staðsetning
- Norræna húsið
- Hefst
- Fimmtudagur 21. maí 2015 08:15
- Lýkur
- Fimmtudagur 21. maí 2015 10:00
Tengt efni
Er vistferilshugsun almenn í íslenskum byggingariðnaði?
Þann 21. maí stendur Vistbyggðarráð fyrir opnum fundi sem ber yfirskriftina, Vistferilshugsun og íslenskur byggingariðnaður. Hvað er vistferilshugsun? Skiptir máli að skoðasérstaklega lífsferil vöru þegar við erum að byggja hús? Hefur það teljandi áhrif á endingu mannvirkis og kostnað framkvæmdar ef við veljum vistvænar og vottaðar byggingavörur umfram aðrar? Hvar get ég aflað mér upplýsinga um umhverfisáhrif vöru, og hvað þýða þessar upplýsingar sem settar eru fram?
Á opnum fundi Vistbyggðarráðs sem haldinn verður í Norræna húsinu, fimmtudagsmorguninn 21. maí verður reynt að leyta svara við ofangreindum spurningunum, en markmiðið er að auka almenna vitund um umhverfismál í tengslum við byggingariðnað hér á landi og skoða hvaða leiðir eru færar til að draga úr umhverfis áhrifum framkvæmda.
Morgunkaffi frá kl. 8:15-8:30
Dagskrá:
8:30 - 8:45 Hvað er raunverulega vistvænt ?
Almennt um vistferilshugsun og hvernig hún er nýtt í mannvirkjagerð og vottunarkerfum.
Helga Jóhanna Bjarnadóttir, verkfræðingur, og sviðstjóriumhverfissviðs hjá EFLU
8:45 - 9:00 Af hverju viljum við nota vistferilsgreiningar fyrir íslenskar framkvæmdir? Bergljót S. Einarsdóttir, verkefnastjóri / arkitekt FAÍ. Framkvæmdasýslu ríksins.
9:00 - 9:15 Mikilvægi LCA greiningar fyrir byggingariðnaðinn. Dr. Ólafur H. Wallevik, verkfræðingur. Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Háskólanum í Reykjavík.
9:15 - 9:30
Hvað kostar byggingin til langs tíma? Greining vistferilskostnaðar við byggingaframkvæmdir. Elín Vignisdóttir, landfræðingur. Verkís.
9:30 -9:45 Life Cycle Assessment as an environmental management tool in the building sector. Jukka Heinonen, Dósent við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands. (erindi á ensku)
9:45 - 10:00
Umræður/fyrirspurnir
Birt:
Tilvitnun:
Vistbyggðarráð „Er vistferilshugsun almenn í íslenskum byggingariðnaði?“, Náttúran.is: 18. maí 2015 URL: http://nature.is/d/2015/05/18/er-vistferilhugsun-almenn-i-islenskum-byggingaridn/ [Skoðað:17. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 21. maí 2015


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: