Vaxtarbroddar og Vistmennt - opnun og útgáfa
- Staðsetning
- Ráðhúaið í Reykjavík Ráðhúsið í Reykjavík
- Hefst
- Fimmtudagur 27. mars 2014 19:00
- Lýkur
- Fimmtudagur 27. mars 2014 20:00
Tengt efni
Vistmennt og Vaxtarbroddar - Hönnunarmars
Vistmennt
Vistmennt er fjölþjóðlegs samstarfsverkefnis í umsjá Arkitektafélags Íslands og kemur samnefnd ritröð „Vistmenn“ út á HönnunarMars. Hún fjallar um sjálfbærni í byggðu umhverfi og byggir á námsefni sem á að nýtast öllum sem starfa við mannvirkjagerð og/eða eru í námi á hinum ýmsu námsstigum. Ritröðin er styrkt af menntaáætlun Evrópusambandsins.
- Vala á vistvænni byggingarefnum
- Veðurfar og byggt umhveri
- Dagsbirta sem vistvænn birtugjafi
Ritröðin verður gefin út á sýningunni Vaxtarbroddar í Ráðhúsi Reykjavíkur (sjá hér að neðan).
Vaxtarbroddar
Arkitektafélag Íslands heldur sýningu á útskriftarverkum nýrrar kynslóðar arkitekta á HönnunarMars. Íslensk byggingarlist hefur þá sérstöðu að arkitektar hafa allir sótt meistaranám erlendis og færa okkur því strauma og stefnur víðsvegar að. Verið velkomin að skyggnast inn í hugarheim næstu kynslóðar íslenskra arkitekta og landslagsarkitekta í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Opnun fimmtudaginn 27. mars kl. 19:00.
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Vistmennt og Vaxtarbroddar - Hönnunarmars“, Náttúran.is: 26. mars 2014 URL: http://nature.is/d/2014/03/26/vistmenn-og-vaxtarbroddar-honnunarmars/ [Skoðað:22. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: