Aðalfundur Landverndar
- Staðsetning
- Túngata 14
- Hefst
- Laugardagur 09. maí 2015 13:00
- Lýkur
- Laugardagur 09. maí 2015 18:00
Tengt efni
Aðalfundur Landverndar 2015
Stjórn Landverndar boðar til aðalfundar samtakanna laugardaginn 9. maí n.k. kl. 13:00-18:00 í sal Kvenfélagasambands Íslands að Hallveigarstöðum við Túngötu 14 í Reykjavík. Dagskrá verður send út viku fyrir aðalfund. Sérstök athygli er vakin á því að formaður Landverndar, Guðmundur Hörður Guðmundsson, og Helena Óladóttir varaformaður gefa ekki kost á sér til stjórnar.
Kjörnefnd leitar eftir framboðum til setu í stjórn
Á fundi stjórnar Landverndar hinn 17. mars sl. var skipuð kjörnefnd sem hefur það hlutverk að tryggja framboð í öll embætti stjórnar. Kosið verður um formann í sérstakri kosningu, sbr. 16. gr. laga samtakanna, og um sæti fjögurra stjórnarmanna.
Kjörnefnd hefur hafið störf og geta félagsmenn haft samband við kjörnefnd og gefið kost á sér eða stungið upp á nöfnum. Nefndin mun ljúka störfum viku fyrir aðalfund, laugardaginn 2. maí, og upplýsa um þau framboð sem þá þegar hafa komið fram samhliða útsendri dagskrá. Tekið skal fram að eftir sem áður rennur framboðsfrestur ekki út fyrr en á aðalfundinum sjálfum. Því geta allir kjörgengir boðið sig fram á fundinum sjálfum.
Í kjörnefnd voru skipuð: Helena Óladóttir, núverandi varaformaður, Karl Ingólfsson og Guðni Olgeirsson, báðir félagsmenn í Landvernd. Þeir sem hafa hug á að bjóða sig fram til stjórnar eða vilja koma ábendingum á framfæri við kjörnefnd geta sent tölvupóst á helena.oladottir@reykjavik.is eða í síma 693-2948.
Lagabreytingar
Við vekjum athygli á því að þeir sem vilja gera tillögur að breytingum á lögum samtakanna, þurfa samkvæmt 20. gr. laganna að koma þeim í hendur stjórnar a.m.k. 3 vikum fyrir aðalfund, þ.e.a.s. eigi síðar en laugardaginn 18. apríl n.k. Tillögur má senda á formann Landverndar, gudmundur@landvernd.is eða til framkvæmdastjóra, mummi@landvernd.is.
Lög Landverndar má finna hér á vefsíðu samtakanna.
Atkvæðisréttur og kjörgengi
Við hvetjum ykkur til að mæta og hafa áhrif á störf samtakanna. Athygli er vakin á 13. gr. laga samtakanna um kjörgengi, en kjörgengir í stjórn eru almennir félagsmenn Landverndar sem eru skuldlausir við samtökin og fulltrúar félaga og félagasamtaka.
Við minnum því þau sem enn skulda félagsgjöld á að greiða þau fyrir aðalfund til að tryggja sér kjörgengi og atkvæðisrétt á fundinum (sbr. 10. og 13. gr. samþykkta). Rukkanir fyrir félagsgjöldum núverandi starfsárs 2014-2015 voru sendar út í nóvember síðastliðnum. Félagsmenn sem skráð hafa sig í samtökin eftir þann tíma eiga von á innheimtuseðli í heimabanka fyrir aðalfund, hafi þeir ekki ákveðið að greiða með öðrum hætti.
Birt:
Tilvitnun:
Landvernd „Aðalfundur Landverndar 2015“, Náttúran.is: 16. apríl 2015 URL: http://nature.is/d/2015/04/16/adalfundur-landverndar-2015/ [Skoðað:29. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: