Sannleikurinn um mjólk og meðferðarúrræði
- Staðsetning
- Grand Hótel - Sigtún 38
- Hefst
- Laugardagur 28. febrúar 2015 13:00
- Lýkur
- Laugardagur 28. febrúar 2015 15:00
Tengt efni
Dr. Ragnar – Sannleikurinn um mjólk og meðferðarúrræði
Heilsufrelsis samtök Íslands kynna fyrirlestur með Dr. Tommy Ragnar Wood. Fyrirlesturinn verður fluttur á Grand Hótel Reykjavík laugardaginn 28. febrúar kl.13:00 - 15:00 og aðgangseyrir eru 1.500 kr. (posi á staðnum).
Tommy Ragnar Wood er fæddur í Bandaríkjunum, en ólst upp í Bretlandi. Hann er lífefnafræðingur (Bs. frá Cambridge) og læknir (frá Oxford) og vann kandídatsárin við Guy's & St. Thomas's spítalan í London. Hann stúndar nú doktorsnám í heilataugalífeðlisfræði ungbarna í Osló. Hann er hálfíslenskur og þekkir því vel til hér á landi.
Dr. Ragnar, eins og hann kallar sig er hafsjór þekkingar um matarræði, næringu, langvinn veikindi og almenna hreyfingu og heilsu. Í þessum fyrsta fyrirlestri hans á vegum samtakanna ætlar Dr. Ragnar að svipta hulinni af mjólkurvörum og fræða okkur um þær rannsóknir og meðferðarúrræði sem í boði eru við M.S. sjúkdómnum.
Í fyrri hluta fyrirlestursins mun Dr. Ragnar taka fyrir mjólkurvörurnar. Eru þær góðar fyrir okkur eða ekki? Hann mun meðal annars fjalla um sögu mjólkurvara í matarhefð okkar manna, um mjólkuróþol og aðra mögulega neikvæða eiginleika mjólkar. Hann fjallar sérstaklega um íslensku mjólkina og hvers vegna hún er sér á báti. Síðan mun hann fara yfir bæði neikvæðar og jákvæðar afleiðingar mjólkurneyslu á hinum ýmsu sjúkdómum. Til að mynda áhrifa hennar á sykursýki, offitu, sjálfsofnæmi, beinþynningu og hjarta- og æðasjúkdóma.
Í seinni hluta fyrirlestursins mun Dr. Ragnar svo fjalla um kerfisgreiningu á M.S. sjúkdómnum og þær lausnir sem bjóðast sjúklingum.
Eftir hvern hluta fyrirlestursins mun Dr. Ragnar svara spurningum úr sal og á milli fyrri og seinni hluta fyrirlestursins verður stutt hlé svo að allir geti teygt úr sér og spjallað sín á milli.
Komið, hlustið, fræðist og fáið að kynnast öðrum heilsufrelsurum! Hlökkum til að sjá ykkur!
Heimasíða Dr. Ragnars: http://drragnar.weebly.com/
Birt:
Tilvitnun:
Heilsufrelsi „Dr. Ragnar – Sannleikurinn um mjólk og meðferðarúrræði“, Náttúran.is: 11. febrúar 2015 URL: http://nature.is/d/2015/02/11/dr-ragnar-sannleikurinn-um-mjolk-og-medferdarurrae/ [Skoðað:30. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: