Tímamót í dýravelferð
- Staðsetning
- Hvanneyri
- Hefst
- Mánudagur 23. febrúar 2015 09:00
- Lýkur
- Mánudagur 23. febrúar 2015 15:00
Tengt efni
Tímamót í dýravelferð
Ný dýravelferðarlög tóku gildi á Íslandi á síðasti ári. Undanfarið hafa velferðarreglugerðir verið gefnar út koll af kolli en þær segja til um hvernig dýravelferðarlögin eru útfærð m.t.t. hverrar dýrategundar fyrir sig. Með útgáfu þessara reglna skapast heildarmynd af því hvernig hlúið skal að dýrum á Íslandi og hvernig því skuli framfylgt. Í tilefni af þessum tímamótum boðar Matvælastofnun, í samstarfi við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Landbúnaðarháskóla Íslands, Bændasamtök Íslands, Dýralæknafélag Íslands og Dýraverndarsamband Íslands, til ráðstefnu um nýju dýravelferðarlögin og reglugerðirnar mánudaginn 23. febrúar kl. 9-15 í Ásgarði á Hvanneyri.
Nýtt regluverk markar tímamót í sögu dýravelferðar á Íslandi. Markmið laganna „er að stuðla að velferð dýra, þ.e. að þau séu laus við vanlíðan, hungur og þorsta, ótta og þjáningu, sársauka, meiðsli og sjúkdóma, í ljósi þess að dýr eru skyni gæddar verur. Enn fremur er það markmið laganna að þau geti sýnt sitt eðlilega atferli eins og frekast er unnt.“ Á ráðstefnunni verður farið yfir helstu ákvæði laganna, framkvæmd þeirra og þýðingu fyrir dýr og dýraeigendur.
Ráðstefnugestum gefst m.a. kostur á að sitja málstofur um hverja dýrategund fyrir sig þar sem viðkomandi velferðarreglugerð verður til umræðu (alifuglar, geit- og sauðfé, hross, minkar, nautgripir og svín). Markmiðið er að upplýsa og hvetja til gagnvirkra umræðna til að ná fram sem flestum sjónarmiðum.
Ráðstefnan er haldin í Ásgarði (Ársal) á Hvanneyri mánudaginn 23. febrúar 2015 kl. 9:00-15:00. Ráðstefnan er opin öllum og er þátttakendum að kostnaðarlausu en hægt verður að fá veitingar gegn vægu verði í mötuneyti skólans. Skráning fer fram á netfanginu skraning@mast.is til 19. febrúar. Vinsamlega takið fram nafn, fyrirtæki/stofnun/samtök og netfang, ásamt þeirri málstofu sem þið viljið taka þátt í. Dagskrá ráðstefnunnar má nálgast í ítarefninu hér að neðan. Ef þú lætur dýravelferð þig varða, ekki láta þá þennan viðburð framhjá þér fara.
Birt:
Tilvitnun:
Matvælastofnun „Tímamót í dýravelferð“, Náttúran.is: 6. febrúar 2015 URL: http://nature.is/d/2015/02/05/timamot-i-dyravelferd/ [Skoðað:30. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 5. febrúar 2015
breytt: 16. febrúar 2015


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: