Þorrinn
- Staðsetning
- Óstaðsett
- Hefst
- Þriðjudagur 20. janúar 2015 00:00
- Lýkur
- Laugardagur 21. febrúar 2015 00:00
Tengt efni
Þorrinn
Þorri - 20. janúar – 20. febrúar
Þorri er sá mánuður, á hverjum sól gengur um vatnsberamerki. Með þorrakomu er vetur hálfnaður. Nú er tími til innanbæjarverka en útivinna er nú lítil nema grjótdráttur. Allt sem þú geymir af lifandi ávöxtum innanhúss þarf nú meiri vöktun en fyrri part vetrar og því meiri sem á líður fram til sumarmála að það skemmist ekki af frosti eða hita, slaga eða ofþurki. Til að gjöra góðan sáðreit er nú hænsnaskarn besti áburður, sé það borið þriggja þumlunga þykkt yfir hann og rigni þar niður til sáðtímans á vori. Mikil votviðri í þessum mánuði boða vorkulda og lítinn grasvöxt.
Birt:
Tilvitnun:
Björn Halldórsson í Sauðlauksdal „Þorrinn“, Náttúran.is: 20. janúar 2015 URL: http://nature.is/d/2007/04/21/20-janar-20-febrar/ [Skoðað:15. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 21. apríl 2007
breytt: 22. janúar 2015


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: