Síðasti dagur til að sækja um starf sem verkefnisstjóri fyrir vernd hálendisins
- Staðsetning
- Óstaðsett
- Hefst
- Mánudagur 05. janúar 2015 00:00
- Lýkur
- Mánudagur 05. janúar 2015 23:59
Tengt efni
Verkefnisstjóri hálendisverkefnis

Náttúruverndarsamtök Íslands og Landvernd auglýsa eftir verkefnisstjóra til að stýra nýju og spennandi verkefni samtakanna fyrir verndun hálendisins. Verkefnið er unnið í samvinnu við Náttúruverndarsjóð Pálma Jónssonar. Starfið felst meðal annars í skipulagningu viðburða, þekkingaröflun og miðlun um málefni hálendisins í samvinnu við hagsmunaaðila úr ólíkum áttum. Gert er ráð fyrir að viðkomandi taki til starfa sem fyrst og ráðið er til eins árs með möguleika á áframhaldandi ráðningu.
Menntun og hæfniskröfur
Samtökin óska eftir að ráða dugmikinn einstakling með háskólamenntun og góða þekkingu og reynslu af náttúruvernd, skipulagsmálum, málefnum miðhálendisins, eða með aðra þá þekkingu sem mundi nýtast við stjórnun verkefnisins. Viðkomandi þarf að vera skipulagður, búa yfir mikilli samskiptafærni og hafa góða stjórnunarhæfni. Gerð er krafa um frumkvæði, sjálfstæði og jákvæðni í starfi og viðkomandi þarf að eiga auðvelt með að koma fram.
Kröfur til umsóknar og frestur
Umsókn þarf að fylgja ferilskrá og greinargerð þar sem ástæða umsóknar er útlistuð, hæfni viðkomandi til að gegna starfinu lýst og listi yfir 2-3 meðmælendur gefinn. Umsóknir skulu sendar á mummi@landvernd.is og arni@natturuvernd.is, merktar „Hálendisverkefni umsókn“. Umsóknarfrestur er til 5. janúar n.k.
Nánari upplýsingar veita: Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtakanna, s. 897 2437 og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Landverndar, s. 863-1177.
Birt:
Tilvitnun:
Landvernd, Náttúruverndarsamtök Íslands, Náttúruverndarsjóður Pálma Jónssonar „Verkefnisstjóri hálendisverkefnis “, Náttúran.is: 19. desember 2014 URL: http://nature.is/d/2014/12/19/verkefnisstjori-halendisverkefnis/ [Skoðað:29. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 2. janúar 2015


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: