Jólamarkaðurinn Elliðavatni opinn
- Staðsetning
- Elliðavatn
- Hefst
- Laugardagur 20. desember 2014 11:00
- Lýkur
- Laugardagur 20. desember 2014 16:00
Tengt efni
Jólamarkaðurinn Elliðavatni
Jólamarkaðurinn vinsæli við Elliðavatn opnaði laugardaginn 29. nóvember og verður opinn allar helgar fram að jólum frá klukkan 11-16. Mikið úrval af íslensku handverki og hönnun.
Dagskráin hefst við hátíðlega athöfn þar sem Skólakór Norðlingaskóla ætlar að gleðja markaðsfólk og gesti með söng sínum kl.11:30 á hlaðinu og jólaljósin á trénu verða tendruð, en tréð í ár er skreytt af Gerði Jónsdóttur.
Á Hlaðinu verða til sölu nýhöggvin íslensk jólatré og þar að auki mikið úrval af tröpputrjánum vinsælu og eldiviður. Í Gamla salnum, Hlöðunni og í litlu Jólahúsunum á torginu verður fjölbreyttur hópur handverksfólks sem kynnir vörur sínar og selur. Kaffistofan verður niðri í Elliðavatnsbænum þar sem fjölskyldan getur fengið sér hressingu í anda jólanna, átt notalega stund, og hlustað á rithöfunda lesa og tónlistarfólk flytja falleg lög.
Rjóðrið er trjálundur rétt við Elliðavatnsbæinn þar sem hægt er að setjast á bekki kringum logandi varðeld. Barnastundin verður þar klukkan 14 og þá kemur barnabókahöfundur og les upp fyrir börnin. Jólasveinar koma í heimsókn á markaðinn, og kíkja líka á börnin í rjóðrinu eftir upplesturinn. Þeir syngja og tralla frá 13.30-15.30.
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Jólamarkaðurinn Elliðavatni“, Náttúran.is: 10. desember 2014 URL: http://nature.is/d/2014/12/10/jolamarkadurinn-ellidavatni/ [Skoðað:30. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: