Morgunverðafundur um grænan ríkisrekstur
- Staðsetning
- Grand Hótel - Sigtún 38
- Hefst
- Miðvikudagur 26. nóvember 2014 08:45
- Lýkur
- Miðvikudagur 26. nóvember 2014 09:15
Tengt efni
Morgunverðafundur um grænan ríkisrekstur
Miðvikudaginn 26. nóvember kl. 8:45 - 10:15 halda stýrihópur um vistvæn innkaup og grænan ríkisrekstur og Félag forstöðumanna ríkisstofnanna morgunverðarfund á Grand hóteli um grænan ríkisrekstur.
Dagskrá fundarins:
- Græn skref Reykjavíkurborgar - reynsla og árangur: Hrönn Hrafnsdóttir, verkefnastjóri Grænna skrefa hjá Reykjavíkurborg.
- Græn skref í ríkisrekstri - nýtt verkfæri, tækifæri til árangurs: Elva Rakel Jónsdóttir, teymisstjóri hjá Umhverfisstofnun.
- Hvað þurfa stofnanir að passa upp á í vistvænum innkaupum? Birna Guðrún Magnadóttir, verkefnastjóri fræðslu hjá Ríkiskaupum.
- Skrefin og óvænti árangurinn – Dæmi frá Landsspítala: Birna Helgadóttir, verkefnastjóri umhverfis- og samgöngumála hjá Landspítala.
Fundarstjóri verður Magnús Guðmundsson, forstjóri Landmælinga Íslands.
Að fundinum standa Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála, Félag forstöðumanna ríkisstofnana og stýrihópur um vistvæn innkaup og grænan ríkisrekstur.
Þátttökugjald er 4.900 kr. morgunverður innifalinn.
Samkvæmt stefnu ríkisins um vistvæn innkaup og grænan ríkisrekstur skal minnka umhverfisáhrif opinberra innkaupa og aðstoða ríkisstofnanir við að grænka rekstur sinn og stuðla að sjálfbærri neyslu. Græn skref Reykjavíkurborgar hafa nú verið aðlöguð fyrir ríkisrekstur og frá og með áramótum gefst öllum kostur á að nýta þetta tækifæri.
Nokkrar stofnanir eru tilbúnar til úttektar á Grænum skrefum sínum og eru allir hvattir til þess að fylgjast vel með á vef grænna skrefa í ríkisrekstri.
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Morgunverðafundur um grænan ríkisrekstur“, Náttúran.is: 25. nóvember 2014 URL: http://nature.is/d/2014/11/25/morgunverdafundur-um-graenan-rikisrekstur/ [Skoðað:14. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: