Vistmorð og flensubani
- Staðsetning
- Síðumúli 1
- Hefst
- Þriðjudagur 25. nóvember 2014 20:00
- Lýkur
- Þriðjudagur 25. nóvember 2014 22:00
Tengt efni
Vistmorð og flensubani á fyrsta fræðslukvöldi Vistræktarfélags Íslands
Vistræktarfélag Íslands stendur fyrir fræðslukvöldi fyrir félaga sína (ath. allir geta gerst félagar) þriðjudaginn 25. nóvember kl. 20:00 - 22:00 í Síðumúli 1, 108 Reykjavík (í húsnæði Garðyrkjufélags Íslands)
Dagskrá:
Hvernig er hægt að berjast gegn eyðileggingu mannsins i heiminum? Dr. Kristín Vala Ragnarsdóttir fjallar um og útskýrir hugtakið vistmorð (e. ecocide) og hvað sé á döfinni í baráttunni gegn því.
Samtökin Eradicating Ecocide (Útrýmum vistmorðum) vinna að því að vistmorð verði skilgreint sem fimmti alþjóðlegi glæpurinn gegn friði í Rómarsamþykktinni. Samþykktin verður næst endurskoðuð árið 2015.
Sjá upptöku með stuttu yfirlýsingu Polly Higgins um vistmorð.
Sjá upptöku sem Náttúran.is gerði af opinna samræðu Polly Higgins og Kristínar Völu Ragnarsdóttur í Norræna húsin þ. 16. ágúst sl.
Kaffipása
Luiza Klaudia Lárusdóttir leiðbeinir við gerð drykkjar sem er góður gegn kvefpestum vetrarins.
Þátttakendur eru hvattir til að blanda sinn eigin drykk og þurfa þá að hafa með sér meðalstóra krukku, 1 sítrónu, 1 hvítlauk og hunang. Luiza ætlar að kynna ræktun þess sem hún kallar pólska hvítlaukinn en hann er stærri en sá sem við eigum að venjast úr búðum og þykir afbragðs góður. Ef sending nær til landsins í tíma þá verður hann til sölu við þetta tækifæri. Kynningin fer fram á ensku.
Með kveðju,
Stjórn Vistræktarfélags Íslands.
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Vistmorð og flensubani á fyrsta fræðslukvöldi Vistræktarfélags Íslands“, Náttúran.is: 20. nóvember 2014 URL: http://nature.is/d/2014/11/20/vistmord-og-flensubani-fyrsta-fraedslukvoldi-vistr/ [Skoðað:27. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: