Haustfundur Landsvirkjunar
- Staðsetning
- Harpa Austurbakki 2
- Hefst
- Þriðjudagur 25. nóvember 2014 14:00
- Lýkur
- Þriðjudagur 25. nóvember 2014 16:00
Tengt efni
Haustfundur Landsvirkjunar 2014
Boðað er til haustfundar Landsvirkjunar þ. 25. nóvember frá kl. 14:00 - 16:00 í Silfurbergi í Hörpu undir fyrirsögninni Fjölbreytt tækifæri fyrir íslenska orku.
Framtíðarsýn Landsvirkjunar er að vera framsækið raforkufyrirtæki á sviði endurnýjanlegra orkugjafa. Landsvirkjiun starfar í alþjóðlegu umhverfi og vil vera meðal þeirra bestu sem vinna og selja orku. Á haustfundinum mun vera fjallað um þær spennandi áskoranir og tækifæri sem Íslendingar standa frammi fyrir í orkuvinnslu og raforkusölu.
Dagskrá:
- Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra - Ávarp
- Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar - Nýtt markaðsumhverfi – fjölbreytt eftirspurn
- Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar - Mikilvægi rammaáætlunar – áskoranir og tækifæri
Endurnýjanlegir orkugjafar og nýir virkjanakostir
- Óli Grétar Blöndal Sveinsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs - Vatnsaflskostir
- Margrét Arnardóttir, verkefnastjóri vindorku - Vindorkukostir
- Gunnar Guðni Tómasson, framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs - Jarðvarmakostir
Umræður
Fundarstjóri: Brynja Þorgeirsdóttir, dagskrárgerðarmaður
Allir velkomnir!
Birt:
Tilvitnun:
Landsvirkjun „Haustfundur Landsvirkjunar 2014“, Náttúran.is: 20. nóvember 2014 URL: http://nature.is/d/2014/11/20/haustfundur-landsvirkjunar-2014/ [Skoðað:14. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: