Lífrænn búskapur á Íslandi – staða og horfur
- Staðsetning
- Bændahöllinni við Hagatorg
- Hefst
- Miðvikudagur 19. nóvember 2014 13:00
- Lýkur
- Miðvikudagur 19. nóvember 2014 17:00
Tengt efni
Lífrænn búskapur á Íslandi – staða og horfur
Bændasamtök Íslands og VOR - Verndun Og Ræktun - félag framleiðanda í lífrænum búskap halda málþing um stöðu og horfur í lífrænum búskap í samræmi við ályktun Búnaðarþings 2014, miðvikudaginn 19. nóvember næstkomandi í Heklusal Radisson Blu Hótel Saga, 2. hæð, kl. 13:00 - 17:00.
Dagskrá:
13:00 Stjórnsýslan; lög og reglur um lífræna landbúnaðarframleiðslu, þar með um vottunarkerfið. Samskiptin við ESB. Stefna og viðhorf íslenskra stjórnvalda til aðlögunarstuðnings o.fl. til eflingar lífræns búskapar: Halldór Runólfsson,Atvinnuvega-og nýsköpunarráðuneytinu
13.25 Þróun lífræns landbúnaðar í ESB,drög að nýrri reglugerð um lífræna landbúnaðarframleiðslu og svigrúm til sveigjanleika í framleiðslureglum vegna svæðabreytileika í Evrópu: Serge Massart, Policy Officer, Organic Farming International, DG Agri, EU, Brussels
14:00 Þáttur lífræns búskapar í íslenskri landbúnaðarframleiðslu. Samkeppnisstaða á búvörumarkaði, m.a. gagnvart innflutningi. Staða og horfur: Erna Bjarnadóttir,Bændasamtökum Íslands
14:20 Hvers vegna velja íslenskir neytendur lífrænt vottaðar afurðir? Tengslin við Slow Food. Vaxandi markaður,þróunin í vinnslu- og markaðsmálum hér á landi: Eygló Björk Ólafsdóttir,Vallanesi (Móðir Jörð ehf ), VOR - verndun og ræktun
14:40 Nýbreytni í garðyrkju- og ylræktarkennslu í þágu lífrænnar framleiðslu hér á landi: Guðrún Helga Guðbjörnsdóttir, Landbúnaðarháskóla Íslands, Reykjum í Ölfusi
15:00 Kaffihlé
15:30 Sóknarfæri í lífrænum búskap. Séð og heyrt í Danmörku á liðnu vori. Framtíðarsýn: Einar Freyr Elínarson, Sólheimahjáleigu, Samtökum ungra bænda
15:50 Starfsumhverfi bænda í lífrænum búskap hér á landi og tengsl þeirra við neytendur. Endurreisn Fagráðs í lífrænum búskap og staða lífrænna bænda (VOR) innan Bændasamtaka Íslands: Guðfinnur Jakobsson, Skaftholti, VOR - Verndun og ræktun
16:10 - 17.00 Pallborðsumræður
Fundarstjóri: Sigurgeir Þorgeirsson,Atvinnuvega-og nýsköpunarráðuneytinu
Málþingið er öllum opið.
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Lífrænn búskapur á Íslandi – staða og horfur“, Náttúran.is: 8. nóvember 2014 URL: http://nature.is/d/2014/11/08/lifraenn-buskapur-islandi-stada-og-horfur/ [Skoðað:16. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 13. nóvember 2014


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: