Þjórsárver – náttúra og náttúruverndarsaga
- Staðsetning
- Urriðaholtsstræti 6
- Hefst
- Miðvikudagur 26. mars 2014 15:15
- Lýkur
- Miðvikudagur 26. mars 2014 16:00
Tengt efni
Hrafnaþing - Þjórsárver – náttúra og náttúruverndarsaga

Á Hrafnaþingi miðvikudaginn 26. mars 2014 kl. 15:15-16:00 mun Gísli Már Gíslason prófessor við Háskóla Íslands flytja erindið „Þjórsárver – náttúra og náttúruverndarsaga“.
Hrafnaþing er haldið í húsakynnum Náttúrufræðistofnunar að Urriðaholtsstræti 6-8 í Garðabæ, í Krummasölum á 3. hæð.
Þjórsárver er heiti sem Finnur Guðmundsson fuglafræðingur gaf varpstöðvum heiðargæsar sunnan Hofsjökuls. Þjósárver eru í dæld sem fær vatn frá Hofsjökli og austan frá Vatnajökli. Nafnið ver (veiðistöð) vísar til þess að þarna voru heiðagæsir veiddar í sárum áður fyrr.
Í erindinu verður skýrt frá náttúru þessa svæðis, sem er stærsta gróðurlendi í miðhálendi Íslands í annars eyðimörk sem umlykur það. Um helmingur er votlendi og á milli þeirra lyng- og víðiheiðar.
Þjórsárver er með meiri tegundafjölbreytileika plantna og dýra en önnur sambærileg svæði á hálendinu og einnig er það þekkt fyrir mikið blómskrúð í brekkum sem snúa móti suðri, eins og Arnarfellsbrekku og Arnarfellsmúlum. Einnig er þetta stærsta sífrera svæði á Íslandi. Heiðargæsin kemur í byrjun maí og verpir á kollum freðmýrarrústa og meðfram ám, þar sem er snjólaust þegar gæsin kemur. Meðan stofninn var minni voru Þjórsárveru stærsta varpsvæðið á Íslandi og núna eru Guðlaugstungur og Þjórsárver stærstu svæðin.
Árið 1969 voru settar fram tillögur um að sökkva öllum verunum undir 200 km2 lón. Með ötulli baráttu einstaklinga, náttúruverndarsamtaka og Náttúruverndarráðs Íslands hefur stærstum hluta þeirra verðið forðað frá því að sökkva undir vatn. Með samkomulagi Náttúruverndarráðs og Landsvirkjunar var verunum austan Þjórsár fórnað undir Kvíslaveitu, sem flytur um 40% af Þjórsá við Norðlingaöldu til Þjórisvatns. Í samkomulaginu var lón við Norðlingaöldu sett í bið og rannsakað hvort það mundi skerða náttúruverndargildi veranna. Náttúrvernd ríkisins, arfttaki Náttúruverndarráðs, komst að þeirri niðurstöðu 2002 að það væri ekki ásættanlegt, en með nýrri löggjöf um mat á umhverfisáhrifum telur Landsvirkjun sig ekki bundna af þessu samkomulagi. Skýrt verður frá sögu náttúruverndar í Þjórsárverum og þeirri einkennilegu stöðu sem er komin upp núna í kjölfar samþykktar Alþingis á þingsályktunartillögu um Rammaáætlun um verndun og nýtingu virkjanakosta.
Ljósmynd: Í Þjórsárverum. Ljósmyndari: Chiara Ferrari Melillo.
Birt:
Tilvitnun:
María Harðardóttir „Hrafnaþing - Þjórsárver – náttúra og náttúruverndarsaga“, Náttúran.is: 21. mars 2014 URL: http://nature.is/d/2014/03/21/hrafnathing-thjorsarver-nattura-og-natturuverndars/ [Skoðað:29. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: