Álag ferðamennsku á náttúru Íslands
- Staðsetning
- Askja - Náttúrufræðihús Háskóla Íslands Askja, Sturlugata 7
- Hefst
- Fimmtudagur 30. október 2014 17:00
- Lýkur
- Fimmtudagur 30. október 2014 18:00
Tengt efni
Álag ferðamennsku á náttúru Íslands
Með vaxandi fjölda gesta til landsins hafa áhyggjur fólks af álagi á land og þjóð farið vaxandi. Sumarið 2014 var umræða um sýnilegt álag á helstu náttúruperlur landsins vegna fjölda gesta mikil. Myndir af skemmdum vegna utanvegaaksturs voru áberandi og fjölmiðlar ræddu um viðhorf gesta til og umgengni þeirra um landið. Á þessari fjórðu örráðstefnu Rannsóknamiðstöðvar ferðamála verður farið yfir stöðu þekkingar á álagi á náttúru landsins af völdum ferðafólks og hvernig hægt er að bregðast við því.
Ráðstefnan er haldin viku eftir dagslöngu þingi Landgræðslu ríkisins og Umhverfisstofnunar um áhrif ferðamanna á náttúru Íslands og mun áherslan vera á að draga saman lærdóm þess þings. Hún hefst á örfáum aðfararorðum um tilefni og tilurð þessarar örráðstefnu. Þar á eftir munu frummælendur stíga á stokk og í stuttum 5 mínútna glærulausum erindum lýsa þekkingu sinni á álagi vegna ferðamanna á náttúru Íslands. Að því loknu verður opnað fyrir umræður og spurningar og eru aðilar úr greininni sem og fjölmiðlafólk sérstaklega hvatt til að mæta í þágu hreinskiptinnar og opinnar umræðu.
Frummælendur á örráðstefnu eru:
|
Dr. Andrés Arnalds |
Landgræðsla ríkisins |
|
Dr. Rannveig Ólafsdóttir |
Háskóli Íslands |
|
Ingibjörg Eiríksdóttir |
Umhverfisstofnun |
|
Friðrik Dagur Arnarson |
Kennari og landvörður |
|
Guðmundur Ingi Guðbrandsson |
Framkvæmdastjóri Landverndar |
Örráðstefna í Öskju – náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands - 30. október 17-18.
(við hlið Norræna hússins) – aðalsalur (stofa 132)
Ef einhverjar spurningar vakna hafið samband við Edward H. Huijbens, Rannsóknamiðstöð ferðamála, edward@unak.is.
Birt:
Tilvitnun:
Rannsóknamiðstöð ferðamála „Álag ferðamennsku á náttúru Íslands“, Náttúran.is: 28. október 2014 URL: http://nature.is/d/2014/10/28/alag-ferdamennsku-natturu-islands/ [Skoðað:16. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: