Vistræktarnámskeið í hraukarækt
- Staðsetning
- Torfastaðir
- Hefst
- Laugardagur 25. október 2014 10:00
- Lýkur
- Laugardagur 25. október 2014 18:00
Tengt efni
Námskeið í hraukarækt
Námskeið í hraukarækt verður haldið að Torfstöðum í Ölfusi (Töfrastaðir) frá kl. 10:00-18:00 laugardaginn 25 október.
Hraukarækt eru vissar aðferðir við að búa til hrauka/hauga sem mynd góð skilyrði fyrir plöntur til að vaxa í. Hægt er að nota hraukana til að halda, stjórna og losa vökva á ræktunarsvæði. Næringar efni losna hægt og þarf því ekki að hafa áhyggjur af næringu plantna í vel gerðum hrauk.
Aðalkennari er Eivind Bjørkavåg sem er norskur vistræktar hönnuður sem hefur aflað sér þekkingar og reynslu í við mismunandi loftslagsskilyrðum. Hann segir að sú reynsla sem hann öðlaðis þegar hann ferðaðist með vistræktar reynsluboltanum Paul Wheaton standi uppúr.
Eivind hefur víða haldið námskeið og fyrirlestra um vistræktar málefni. Hann er stofnandi Bærum permakulturforening og situr í stjórn vistræktarfélags Noregs. Í fallegu umhverfi rétt fyrir utan Osló er hann að koma upp vistræktar kynningarsvæði með frábærum árangri eftir fyrsta árið.
Námskeiðsgjald er 8.000.- krónur, heimalöguð kjötsúpa og kaka innifalin. Eivindi til aðstoðar verða Mörður G.Ott. sveitabæjarstjóri Töfrastaða og Hallur Hróarsson bóndi á Gerðarkoti.
Þeir sem vilja skrá sig eru beðnir um að senda póst á moli@greenmail.net eða hafa samband símleiðis 770 0066.
Birt:
Tilvitnun:
Mörður Ottesen „Námskeið í hraukarækt“, Náttúran.is: 20. október 2014 URL: http://nature.is/d/2014/10/20/namskeid-i-hraukaraekt/ [Skoðað:14. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 25. október 2014


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: