Samstöðufundur um náttúruvernd og tjáningarfrelsi á Íslandi
- Staðsetning
- Garðastekkur við Álftanesveg
- Hefst
- Þriðjudagur 21. október 2014 17:00
- Lýkur
- Þriðjudagur 21. október 2014 19:00
Tengt efni
Gálgahraun – samstöðufundur um náttúruvernd og tjáningarfrelsi á Íslandi
Þann 21. október kl 17.00 verður samstöðufundur náttúruverndarsinna og mótmælenda á Íslandi haldinn við Garðastekk við Álftanesveg undir nafninu Gálgahraun – samstöðufundur um náttúruvernd og tjáningarfrelsi á Íslandi.
Fyrir ári síðan réðst 60 manna lögreglulið og jarðýta gegn hópi fólks sem mótmælti á friðsaman hátt lagningu nýs Álftanesvegar um Gálgahraun. Yfir 20 manns voru handteknir, færðir á lögreglustöð og margir settir í einangrun. Níu þeirra voru síðar ákærð og þann 9. október síðastliðinn gerðist sá alvarlegi atburður að Héraðsdómur Reykjaness sakfelldi þau fyrir borgaralega óhlýðni. Handtökur mótmælenda í Gálgahrauni þann 21. Október 2013, með stærstu lögregluaðgerð seinni ára, eru vitni um alvarlegt ofbeldi stjórnvalda gagnvart þegnum landsins og stórt skref í átt að lögregluríki. Sakfelling 9 menninganna er síðan alvarleg aðför að tjáningarfrelsi á Íslandi sem veitir lögreglu ótakmarkaðar heimildir til að brjóta upp friðsamleg mótmæli og handtaka fólk að handahófi og án tilefnis.
Við hvetjum því náttúruverrndasinna og alla sem vilja verja rétt Íslendinga til að mótmæla athöfnum stjórnvalda til að mæta við Garðastekk og Gálgahraun þar sem handtökur mótmælenda hófust fyrir ári. Ómar Ragnarsson flytur sitt óviðjafnanlega Gálgarokk, Háskólakórinn undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar syngur nokkur lög og nokkrir þeirra handteknu syngja söngva sem ómuðu úr einangrunarklefunum. Stutt erindi verða einnig flutt, boðið upp á mótmælakaffi og andmælakökur í tjaldbúðum mótmælenda og sýndar verða ljósmyndir sem sýna aðfarir lögreglunnar. Náttúrverndartrefillinn verður auðvitað á svæðinu lengri enn nokkru sinni fyrr. Til að komast á staðinn er ekið inn á bílastæði af Álftanesveginum á leiðinni til Bessastaða.
Birt:
Tilvitnun:
Framtíðarlandið „Gálgahraun – samstöðufundur um náttúruvernd og tjáningarfrelsi á Íslandi“, Náttúran.is: 17. október 2014 URL: http://nature.is/d/2014/10/17/galgahraun-samstodufundur-um-natturuvernd-og-tjani/ [Skoðað:15. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: