Málþing NLFÍ um hvítt hveiti
- Staðsetning
- Nauthólsvegur 52
- Hefst
- Þriðjudagur 21. október 2014 19:30
- Lýkur
- Þriðjudagur 21. október 2014 22:00
Tengt efni
Hvítt hveiti - skaðvaldur og næringarlaus orkugjafi?
Náttúrulækningafélag Íslands efnir til málþings á Icelandair hótel Reykjavík Nature, Þingsal 1, þriðjudaginn 21. október kl. 19:30.
Geir Gunnar Markússon, næringarfræðingur HNLFÍ setur þálþingið.
Ávarp: Gunnlaugur K. Jónsson forseti NLFÍ.
Fundarstjóri: Haraldur Erlendsson, forstjóri og yfirlæknir á Heilsustofnun NLFÍ.
- Er hveiti bara hveiti? Hvað segir meltingin? - Sigurjón Vilbergsson, lyflæknir og meltingarsérfræðingur.
- Að vera eða vera ekki óþolandi hveiti, það er spurningin - Dr. Björn Rúnar Lúðvíksson, prófessor og yfirlæknir, ónæmisfræðideild LSH.
- Glútenóþol, hveitiofnæmi, Seliak og glútenóþolssamtök Íslands - Ösp Viðarsdóttir, næringarþerapisti og Birna Óskarsdóttir, hjúkrunarfræðingur.
- Lífrænn bakstur - Sigfús Guðfinnsson, bakarameistari, Brauðhúsinu Grímsbæ.
- Reynslusaga - Þorleifur Einar Pétursson, flugmaður
- Hveitilaus matargerð - Sólveig Eiríksdóttir, GLÓ
- Pallborðsumræður
Allir velkomnir. Aðgangseyrir 2.000 kr. Frítt fyrir félagsmenn.
Birt:
Tilvitnun:
Náttúrulækningafélag Íslands „Hvítt hveiti - skaðvaldur og næringarlaus orkugjafi?“, Náttúran.is: 14. október 2014 URL: http://nature.is/d/2014/10/14/hvitt-hveiti-skadvaldur-og-naeringarlaus-orkugjafi/ [Skoðað:30. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: