Skilafrestur til innsendinga umsagna um frumvarp um landsáætlun um uppbyggingu innviða fyrir ferðamenn rennur út
- Staðsetning
- Óstaðsett
- Hefst
- Laugardagur 11. október 2014 23:59
- Lýkur
- Laugardagur 11. október 2014 23:59
Tengt efni
Frumvarp um landsáætlun um uppbyggingu innviða fyrir ferðamenn í umsagnarferli
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að frumvarpi til laga um landsáætlun um uppbyggingu innviða fyrir ferðamenn í þágu náttúruverndar.
Frumvarpið kveður á um að gerð verði tólf ára stefnumarkandi áætlun um uppbyggingu innviða en innan hennar verði þriggja ára verkefnaáætlanir, sem lagðar verða fyrir Alþingi í formi þingsályktunartillagna. Er markmiðið með áætluninni að móta stefnu, samræma og forgangsraða tillögum um uppbyggingu og viðhald innviða fyrir ferðamenn í þágu náttúruverndar.
Frumvarpið nær til landsvæða þar sem er að finna ferðamannastaði, jafnt innan eignarlanda sem þjóðlendna og nær áætlunin til landsins alls. Gert er ráð fyrir að ráðherra skipi tvo hópa, stýrihóp og samráðshóp, sem vinni saman að gerð bæði tólf ára áætlunarinnar og styttri þriggja ára verkefnaáætlana.
Áætluninni er ætlað að vernda náttúruna, koma í veg fyrir náttúruspjöll og tryggja nauðsynlegar lagfæringar, draga úr raski af völdum nýtingar, dreifa álagi, tryggja öryggi ferðamanna og meta ný svæði auk þess að sjá til þess að uppbygging innviða falli vel að heildarsvipmóti lands.
Áhersla er lögð á víðtækt samráð við gerð framkvæmdaáætlunar og verkefnaáætlana þar sem gert er ráð fyrir aðkomu sveitarfélaga, ferðaþjónustunnar, landeigenda, opinberra stofnana, háskóla, frjálsra félagasamtaka og hagsmunasamtaka auk ráðuneyta umhverfismála, ferðamála og fjármála.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið efnir til opins kynningarfundar um frumvarpið mánudaginn 6. október næstkomandi kl. 13 – 15. Fundurinn verður haldinn í sal ráðuneytisins að Skuggasundi 1, 101 Reykjavík. Óskað er eftir því að fólk skrái sig á fundinn á sérstöku skráningarformi sem er að finna hér.
Umsögnum um frumvarpið skal skila í síðasta lagi 11. október næstkomandi á netfangið postur@uar.is eða í bréfpósti, á umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík.
Drög að frumvarpi til laga um landsáætlun um uppbyggingu innviða fyrir ferðamenn í þágu náttúruverndar. PDF útgáfa Word skjal.
Ljósmynd: Göngufólk á Heklu, ljósm. Árni Tryggvason.
Birt:
Tilvitnun:
Umhverfisráðuneytið „Frumvarp um landsáætlun um uppbyggingu innviða fyrir ferðamenn í umsagnarferli“, Náttúran.is: 28. september 2014 URL: http://nature.is/d/2014/09/28/frumvarp-um-landsaaetlun-um-uppbyggingu-innvida-fy/ [Skoðað:29. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 14. október 2014


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: