Sveitamarkaður og fjölskyldudagur í Fákaseli
- Staðsetning
- Ingólfshvoll
- Hefst
- Föstudagur 03. október 2014 12:00
- Lýkur
- Föstudagur 03. október 2014 16:00
Tengt efni
Sveitamarkaður og fjölskyldudagur í Fákaseli
Sveitamarkaður og fjölskyldudagur verður í Fákasel í Ölfusi sunnudaginn, 5.október, milli kl. 12:00 og 16:00.
Íslenskur matur beint frá býli og einstakt íslenskt handverk til sölu. Ýmisleg skemmtun fyrir fjölskylduna, þrautir, leikir og Sirkus Íslands mætir á svæðið. Brunch á veitingastaðnum okkar og fullt fallegt fyrir augað hjá Kronkron Fákaseli. Hlökkum til að sjá ykkur!
Sjá viðburðinn á Facebook: https://www.facebook.com/events/836573529700169/
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Sveitamarkaður og fjölskyldudagur í Fákaseli“, Náttúran.is: 3. október 2014 URL: http://nature.is/d/2014/10/03/sveitamarkadur-og-fjolskyldudagur-i-fakaseli/ [Skoðað:15. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: