Fyrirlestur um þróun göngustíga, gerð og viðhald þeirra
- Staðsetning
- Lögberg Sæmundargata 8
- Hefst
- Föstudagur 03. október 2014 12:15
- Lýkur
- Föstudagur 03. október 2014 13:00
Tengt efni
Fyrirlestur um þróun göngustíga, gerð og viðhald þeirra
Landvernd efnir til hádegisfyrirlestrar þar sem Bob Aitken, skoskur landfræðingur og ráðgjafi í umhverfismálum á útivistarsvæðum talar um göngustíga. Bob er frumkvöðull í skipulagningu og viðhaldi á göngustígum á hálendum svæðum í Skotlandi og víðar. Hann mun velta upp leiðum til að takast á við þær áskoranir og tækifæri sem felast í skipulagi göngustíga hérlendis með tilliti til aukins fjölda ferðamanna og aukins áhuga Íslendinga á útivist. Bob hefur sértæka reynslu í lagningu stíga á hálendi um allan heim og má þar nefna í evrópsku Ölpunum, á Írlandi, á hálendi Skotlands og víðar í Bretlandi. Bob hefur starfað við ráðgjöf varðandi göngustígastjórnun og viðhald þeirra á viðkvæmum svæðum undanfarin 30 ár.
Fyrirlesturinn verður haldinn þ. 3.október kl. 12:15 í Lögbergi, stofu 101 í Háskóla Íslands.
Aðgangur ókeypis og öllum opinn.
Ljósmynd: Göngustígur í Kerlingarfjöllum, ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.
Birt:
Tilvitnun:
Landvernd „Fyrirlestur um þróun göngustíga, gerð og viðhald þeirra“, Náttúran.is: 2. október 2014 URL: http://nature.is/d/2014/10/02/fyrirlestur-um-throun-gongustiga-gerd-og-vidhald-t/ [Skoðað:29. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 14. október 2014


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: