Frestur til að tilnefna til Umhverfisverðlauna Ferðamálastofu rennur út
- Staðsetning
- Óstaðsett
- Hefst
- Fimmtudagur 16. október 2014 16:00
- Lýkur
- Fimmtudagur 16. október 2014 16:00
Tengt efni
Óskað eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna Ferðamálastofu 2014
Ferðamálastofa auglýsir eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna fyrir árið 2014. Verðlaunin hafa verið veitt árlega frá árinu 1995 og er tilgangur þeirra að beina athyglinni að þeim ferðamannastöðum eða aðilum sem sinna umhverfismálum í starfi sínu og framtíðarskipulagi.
Hverjir koma til greina sem verðlaunahafar?
Allir þeir sem tengjast ferðamálum og láta sig umhverfismál varða og vinna markvisst að því að viðhalda jafnvægi milli efnahagslegra, náttúrlegra og félagslegra þátta, geta komið til greina. Það geta verið einstaklingar, fyrirtæki eða félagasamtök.
Hvernig er tilnefnt?
Aðilar geta tilnefnt hvort sem er sjálfa sig eða önnur fyrirtæki/félög. Fylla þarf út einfalt form hér á vefnum en þar kemur fram eftir hverju er leitað og hvaða aðtriði sem þurfa að vera í lagi þegar ferðaþjónustuaðilar eru tilnefndir. Tilnefningar þurfa að hafa borist fyrir kl. 12:00 þann 16. október en verðlaunin verða afhent á Ferðamálaþingi 2014 í Hörpu 29. október næstkomandi.
Tilnefning til Umhverfisverðlauna 2014 - form til útfyllingar
Nánari upplýsingar veitir umhverfisstjóri Ferðamálastofu, Björn Jóhannsson, bjorn@ferdamalastofa.is
Nánari upplýsingar og listi yfir fyrri verðlaunahafa
Birt:
Tilvitnun:
Ferðamálastofa „Óskað eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna Ferðamálastofu 2014“, Náttúran.is: 29. september 2014 URL: http://nature.is/d/2014/09/29/oskad-eftir-tilnefningum-til-umhverfisverdlauna-fe/ [Skoðað:15. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: