Hlýnun - opnun
- Staðsetning
- Tryggvagata 17
- Hefst
- Laugardagur 20. september 2014 14:00
- Lýkur
- Laugardagur 20. september 2014 18:00
Tengt efni
Hlýnun
Kristín Pálmadóttir opnar sýninguna „Hlýnun“ laugardaginn 20. september í sýningarsal félagsins Íslensk Grafík Hafnarhúsinu hafnarmegin.
Kristín útskrifaðist frá grafíkdeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands fyrir 20 árum síðan. Megin viðfangsefni hennar síðustu ár hefur verið ljósmyndaæting og málun. Myndefni í báðum miðlum tengjast náttúrunni, krafti hennar og breytingum. Hvaða áhrif hefur hlýnun jarðar á umhverfi okkar. Hluti verka sýningarinnar eru tengd þeim hugleiðingum.
Sýningin stendur til 5. október 2014 og er opin fimmtudaga til sunnudags frá 14:00-18:00.
Birt:
Tilvitnun:
SÍM - Samband íslenskra myndlistarmanna „Hlýnun“, Náttúran.is: 20. september 2014 URL: http://nature.is/d/2014/09/20/hlynun/ [Skoðað:15. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 21. september 2014


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: