1. aðalfundur Vistræktarfélags Íslands
- Staðsetning
- Grensásvegur 12a
- Hefst
- Laugardagur 20. september 2014 14:00
- Lýkur
- Laugardagur 20. september 2014 16:00
Tengt efni
Fyrsti aðalfundur Vistræktarfélags Íslands
Fyrsti aðalfundur Vistræktarfélags Íslands verður haldinn laugardaginn 20. september kl. 14:00 í húsnæði Dýraverndarsambands Íslands að Grensásvegi 12a.
Vistræktarfélag Íslands var formlega stofnað í ágúst sl.
Til að öðlast atkvæðisrétt á fundinum er gestum boðið að gerast félagar við innganginn. Allir velkomnir!
Dagskrá:
- Setning aðalfundar
- Hefðbundin aðalfundarstörf s.s. stefnumörkun félagsins, kjör stjórnar og ákvörðun félagsgjalds
- Aðlfundi slitið
- Kynningar á vistræktarverkefnum þ.á.m. Vistræktarsíðu Náttúran.is.
- Samvera / veitingar
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Fyrsti aðalfundur Vistræktarfélags Íslands“, Náttúran.is: 18. september 2014 URL: http://nature.is/d/2014/09/18/fyrsti-adalfundur-vistraektarfelags-islands/ [Skoðað:28. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 30. október 2014


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: