Glókollaferð
- Staðsetning
- Bílastæði við Fossvogskirkju
- Hefst
- Þriðjudagur 16. september 2014 17:30
- Lýkur
- Þriðjudagur 16. september 2014 18:30
Tengt efni
Glókollaferð á degi íslenskrar náttúru
Þriðjudaginn 16. september verður Fuglavernd með fuglaskoðun í kirkjugarðinum í Fossvogi - í tilefni Dags íslenskrar náttúru - við munum skoða glókolla og jafnvel barrfinkur og krossnefi. Þó þetta séu ekki einkennisfuglar íslenskar fuglafánu þá hefur glókollurinn numið hér land, er staðfugl og spjarar sig ágætlega þrátt fyrir að vera minnsti fugl Evrópu, krossnefir hafa verpt hér síðan 2008 og barrfinkan er árlegur flækingur og líklegur landnemi.
Mæting hálfsex á bílastæðinu við Fossvogskirkju en gangan tekur um klukkutíma.
Edward Rickson fuglaskoðari með meiru leiðir gönguna.
Eyþór Ingi Jónsson tók þessa fallegu mynd af glókolli en afar erfitt er að koma auga á þá fyrir óvana. Kall glókollsins er á hárri tíðini sem fer gjarnan fram hjá fólki sem komið er fram yfir miðjan aldur en sönginn heyra flestir en söngur hans líkist söng skógarþrasta.
Birt:
Tilvitnun:
Fuglavernd - Fuglaverndarfélag Íslands „Glókollaferð á degi íslenskrar náttúru“, Náttúran.is: 11. september 2014 URL: http://nature.is/d/2014/09/11/glokollaferd-degi-islenskrar-natturu/ [Skoðað:16. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: