Málstofa um nýtingu sjávarþörunga
- Staðsetning
- Vínlandsleið
- Hefst
- Þriðjudagur 16. september 2014 12:45
- Lýkur
- Þriðjudagur 16. september 2014 17:00
Tengt efni
TASTE – nýting á matþörungum til bragðaukningar og saltminnkunar í matvælaframleiðslu
Í tilefni af lokum verkefnisins TASTE verður haldin opin málstofa þann 16. september á Matís um nýtingu á sjávarþörungum til bragðaukningar og saltminnkunar í matvælaframleiðslu.
Á málstofunni verða haldnir fyrirlestrar um sjávarþörunga á Íslandi og nýtingu þeirra, sjávarþörungiðnaðinn í Frakklandi, næringargildi þörunga og notkun þörunga í matvæli og aðrar neytendavörur. Málstofan fer fram á ensku.
Skráning á málstofuna: vinsamlegast sendið póst á rosa()matis.is.
Nánari upplýsingar um TASTE verkefnið má finna á vefsíðu verkefnisins, http://tasteproject.net/, á heimasíðu Matís og með því að hafa samband við Rósu Jónsdóttur og Þóru Valsdóttur hjá Matís.
Birt:
Tilvitnun:
Steinar B. Aðalbjörnsson „TASTE – nýting á matþörungum til bragðaukningar og saltminnkunar í matvælaframleiðslu“, Náttúran.is: 11. september 2014 URL: http://nature.is/d/2014/09/11/taste-nyting-matthorungum-til-bragdaukningar-og-sa/ [Skoðað:14. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: