Þétting byggðar: Stefna í úlfakreppu?
- Staðsetning
- Menntavegur 1
- Hefst
- Fimmtudagur 11. september 2014 16:30
- Lýkur
- Fimmtudagur 11. september 2014 17:30
Tengt efni
Þétting byggðar: Stefna í úlfakreppu?
Dr. Terry Hartig prófessor í umhverfissálfræði við Uppsalaháskóla mun flytja erindið „The densification dilemma: Stress, restoration and the pursuit of urban sustainability“ á opnum fyrirlestri í Háskólanum í Reykjavík, fimmtudaginn 11. september nk. kl. 16.30 í stofu M105.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Dr. Terry Hartig er einn afkastamesti og fremsti vísindamaður heims á sviði umhverfissálfræði. Hann hefur í meira en aldarfjórðung unnið að rannsóknum á heilsueflandi áhrifum náttúrunnar á fólk, og eftir hann liggur fjöldi rannsókna og greina.
Í fyrirlestrinum mun dr. Hartig ræða um tengsl lýðheilsu og þéttingar byggðar. Það er engum vafa undirorpið að kostir þéttari byggðar eru margir í umhverfislegum, félagslegum og efnahagslegum skilningi. Engu að síður hefur það sýnt sig að með skerðingu grænna svæða og torveldara aðgengi að þeim sem eftir standa, gengur þéttari byggð oft í berhögg við eflingu lýðheilsu. Sú spurning vaknar því með hvaða hætti samfélagið getur tryggt að íbúar í þéttbýli hafi greiðan aðgang að heilsubætandi náttúrulegum svæðum, samfara aukinni þéttingu byggðar?
Reifaðar verða niðurstöður nýlegra rannsókna á sviði umhverfissálfræði sem sýna fram á heilsufarslegt mikilvægi þess að þéttbýlisbúa séu í nálægð við náttúru. Jafnframt verður fjallað um með hvaða hætti má tryggja og efla tengsl íbúa og náttúru þegar byggð er þétt.
Koma dr. Hartig til Íslands nú er í tengslum við rannsóknarverkefnið Cities that Sustain Us: Using Virtual Reality to Test the Restorative Potential of Future Urban Environments sem er samstarfsverkefni Gervigreindarseturs Háskólans í Reykjavík (CADIA) og Sálfræðideildar Uppsala-háskóla í Svíþjóð. Aðrir aðilar sem koma að verkefninu eru Reykjavíkurborg, Listaháskóli Íslands og Teiknistofa Guðrúnar Jónsdóttur.
Heimasíða Háskólans í Reykjavík og CADIA: www.ru.is og heimasíða Terry Hartig: www2.ibf.uu.se/PERSON/terry/terry.html.
Birt:
Tilvitnun:
Páll Jakob Líndal „Þétting byggðar: Stefna í úlfakreppu?“, Náttúran.is: 8. september 2014 URL: http://nature.is/d/2014/09/09/thetting-byggdar-stefna-i-ulfakreppu/ [Skoðað:18. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 9. september 2014


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: