Þemadagur um ræktun jólatrjáa
- Staðsetning
- Elliðavatn
- Hefst
- Fimmtudagur 11. september 2014 10:00
- Lýkur
- Fimmtudagur 11. september 2014 16:00
Tengt efni
Þemadagur tengdur ræktun jólatrjáa 2014
Fimmtudaginn 11.september kl. 10.00 – 16.00 heldur Skógræktarfélagi Reykjavíkur þemadag tengdan ræktun jólatrjá. Þemadagurinn verður haldinn að Elliðavatni í Heiðmörk.
Dagskrá:
9.30 - 10.00 Sala jólatrjáa á Íslandi. Flokkun, gæðamál og söluaðferðir - Kynning á dagskrá og viðfangsefni dagsins. Else Möller, skógfræðingur
10.00 - 10.45 Sala jólatrjáa hjá Skógrækt ríkisins - Hvernig fer sala jólatrjáa fram hjá Skógrækt ríkisins. Flokkun, söluaðferðir og árangur. Hreinn Óskarsson, skógfræðingur og skógarvörður á Suðurlandi.
11.00 – 12.00 Sala íslenskra jólatrjáa hjá Blómavali - Kristinn Einarsson, framkvæmdastjóri hjá Blómavali kemur og ræðir sölumál tengd íslenskum jólatrjám séð frá sjónarhóli sölumannsins.
12.00 - 13.00 Hádegismatur
13.00 – 13.30 Íslenskt flokkunarkerfi fyrir alla - hvernig á það að vera - Stutt erindi með tillögum til umræðu - Else Möller, skógfræðingur
14.00 - 15.30 Að velja og flokka jólatré fyrir næstu jól. Hvenær og hvernig förum við að þessu? - Förum í reiti í Heiðmörk með trjám sem eru tilbúin fyrir sölu og ræðum gæði og flokkun undir leiðsögn Gústafs og Sævars.
Kl. 15.30 - 16.00 Kaffi og umræður.
Kostnaður fyrir daginn: 10.000 kr. Upplýsingar og skráning fyrir 8. september: Else Möller else.akur@gmail.com GSM: 867-0527
f.h.Skrf. Rvk gustafjarl@heidmork.is GSM: 856-0059.
Ljósmynd: Daníel skoðar furuköngla, ljósm.Guðrún Tryggvadóttir.
Birt:
Tilvitnun:
Skógræktarfélag Reykjavíkur „Þemadagur tengdur ræktun jólatrjáa 2014“, Náttúran.is: 4. september 2014 URL: http://nature.is/d/2014/09/04/themadagur-tengdur-raektun-jolatrjaa-2014/ [Skoðað:27. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: