Kynningarfundur um úttekt OECD á þróun umhverfismála á Íslandi
- Staðsetning
- Hótel Natura - Nauthólsvegur 52
- Hefst
- Fimmtudagur 04. september 2014 10:00
- Lýkur
- Fimmtudagur 04. september 2014 12:00
Tengt efni
Þriðja úttekt OECD á stöðu og þróun umhverfismála á Íslandi
Kynning á Hótel Natura, fimmtudaginn 4. september kl. 10:00.
Efnahags-og framfarastofnunin (OECD – The Organization for Economic Co-operation and Development) kynnir á morgun heildarúttekt á stöðu og þróun umhverfismála á Íslandi yfir tímabilið 2001-2013. Þetta er í þriðja sinn sem OECD gerir slíka úttekt á umhverfismálum hér á landi.
Í skýrslunni er m.a. farið yfir stöðu og stefnumörkun í málaflokknum, vöxt græna hagkerfisins og sjálfbæra fiskveiðistjórnun auk þess sem sjónum er sérstaklega beint að því álagi sem orkugeirinn og ferðaiðnaðurinn hefur í vaxandi mæli í för með sér og endurspeglast m.a. í aukinni umræðu um þolmörk álagssvæða.
OECD hefur framkvæmt slíkar úttektir á umhverfismálum aðildarríkjanna frá árinu 1992. Ísland og Þýskaland voru fyrstu tvö ríkin sem voru tekin fyrir með þessum hætti, og var gerð grein fyrir þeirri úttekt í skýrslu sem út kom árið 1993. Næsta úttekt á Íslandi af þessu tagi var gefin út í skýrslu OECD árið 2001. Að jafnaði eru 3-4 aðildarríki OECD tekin fyrir ár hvert með þessum hætti, þannig að það tekur rétt rúman áratug að fara hringinn. Vinna við þriðju úttekt á Íslandi, sem nú verður kynnt, hófst í september 2012, og er hluti af svokölluðum „third cycle of environmental performance reviews“.
Í lok mars 2014 sat sendinefnd Íslands fyrir svörum á fundi vinnunefndar OECD um umhverfismál, þar sem voru mættir fulltrúar aðildarríkjana. Á þeim fundi var komið á framfæri athugasemdum og nánari útskýringum á ýmsum atriðum á þeim skýrsludrögum sem vinnunefndin fékk til umfjöllunar.
Á kynningarfundinum á morgun munu Simon Upton, yfirmaður umhverfissviðs OECD (Environment Directorate) og Brendan Gillespie, forstöðumaður umhverfisúttekta (Environmental Performance and Information Division) afhenda formlega og kynna skýrsluna. Á fundinum verða fulltrúar fjölda stofnana, ráðuneyta, hagsmunasamtaka og náttúruverndarsamtaka og munu fulltrúar OECD svara fyrirspurnum úr sal að lokinni kynningunni.
Fundarstjóri verður Berglind Ásgeirsdóttir, sendiherra í París, sem jafnframt er sendiherra Íslands gagnvart OECD.
Ljósmynd: Illagil að Fjallabaki, ljósm. Árni Tryggvason.
Birt:
Tilvitnun:
Bergþóra Njála Guðmundsdóttir „Þriðja úttekt OECD á stöðu og þróun umhverfismála á Íslandi“, Náttúran.is: 3. september 2014 URL: http://nature.is/d/2014/09/04/thridja-uttekt-oecd-stodu-og-throun-umhverfismala-/ [Skoðað:17. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 4. september 2014


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: