Fræsöfnun með Garðyrkjufélaginu
- Staðsetning
- Óstaðsett
- Hefst
- Fimmtudagur 28. ágúst 2014 18:00
- Lýkur
- Fimmtudagur 28. ágúst 2014 20:00
Tengt efni
Fræðsla um söfnun og meðhöndlun fræja.
Fræbanki Garðyrkjufélagsins efnir til fræðslu um tínslu og meðhöndlun fræja fimmtudaginn 28. ágúst í Grafarvogi. Fræðslan hefst kl 18:00 og stendur í um það bil tvær klukkustundir.
Nú er rétti tíminn til að fylgjst með þroskun fræja í garðinum, sumarbústaðalandinu og nánasta umhverfi.
Sérfræðingar fræbankans ætla með þátttakendum að safna hinum ýmsu tegundum fræja.
Skoðað verður hvernig fræ hinna ýmsu tegunda lítur út og hvenær það er þroskað. Þá verður kennd meðhöndlun fræja til að mynda þurrkun, geymsla og pökkun þeirra.
Gefin verða góð og hagnýt ráð um sáningar og margt fleira. Fræbanki Garðyrkjufélgsins gefur út frælista á hverju ári og í góðu árferði má finna á frælistanum fræ af hátt í 1000 tegundum og yrkjum.
Fræbankanum berst mikið magn fræja frá félagsmönnum GÍ. sem er helsta uppistaða fræbankans.
Frænefndin vinnur úr fræsendingum, flokkar og pakkar og með hækkandi sól er gefin út frælisti þar sem félagsmenn geta pantað sér fræ af hinum ýmsum tegundum.
Að venju eru allar frægjafir til félagsins mjög vel þegnar, frælisti félagsins hefur notið mikilla vinsælda félagsmanna undanfarin ár. Félagið þarf því töluvert af fræjum til að anna eftirspurn.
Safnast verður saman rétt austan við sjúkrahús SÁÁ í Grafarvogi, en ekið er niður frá Stórhöfða í átt að sjúkrahúsinu um 100 metra, þar sem leiðbeinendur taka á móti þátttakendum.
Leiðbeinendur verða: Barbara Stanzeit, Sigþóra Oddsdóttir og Hannes Þór Hafsteinsson.
Ljósmynd: Mjaðurt með þroskuðum fræjum 28.08.2014, ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.
Birt:
Tilvitnun:
Garðyrkjufélag Íslands „Fræðsla um söfnun og meðhöndlun fræja.“, Náttúran.is: 28. ágúst 2014 URL: http://nature.is/d/2014/08/28/fraedsla-um-sofnun-og-medhondlun-fraeja/ [Skoðað:27. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: