Nordic Showroom on Energy Quality Management
- Staðsetning
- Óstaðsett
- Hefst
- Miðvikudagur 27. ágúst 2014 09:00
- Lýkur
- Fimmtudagur 28. ágúst 2014 17:40
Tengt efni
Ráðstefna um gæði og nýtingu orku
Dagana 27.-28. ágúst stendur Orkustofnun fyrir ráðstefnunni Nordic Showroom on Energy Quality Management, um gæði og nýtingu orku.
Á ráðstefnunni sem haldin verður í Hörpu mun iðnaðar- og viðskiptaráðherra flytja ávarp og þar varður m.a. fjallað um bylgingarkenndar hitaveitur í Stokkhólmi, fjölnýting orkunnar í finnskum tölvuverum og varmadæluvæðingu á Íslandi.
Fyrirlestrarnir eru á ensku.
Skráning á os@os.is
Sjá dagskrá ráðstefnunnar hér.
Ljósmynd: Krafl, ljósm. Árni Tryggvason.
Birt:
Tilvitnun:
Orkustofnun „Ráðstefna um gæði og nýtingu orku“, Náttúran.is: 26. ágúst 2014 URL: http://nature.is/d/2014/08/26/radstefna-um-gaedi-og-nytingu-orku/ [Skoðað:14. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: