Opnunarhátíð Íslenska bæjarins
- Staðsetning
- Austur-Meðalholt
- Hefst
- Laugardagur 30. ágúst 2014 14:00
- Lýkur
- Laugardagur 30. ágúst 2014 17:00
Tengt efni
Íslenski bærinn opnar
Verið velkomin að vera við opnun fyrstu sýningarinnar, Íslenski bærinn - Fegurð og útsjónarsemi í húsakynnum Íslenska bæjarins að Austur Meðalholtum, Flóahreppi. Þessi sýning markar upphaf formlegrar starfsemi stofnunar sem verið hefur í uppbyggingu mörg undanfarin ár.
Menningarsetrið Íslenski bærinn er húsaþorp, sýningarstaður, samkomustaður og leikvöllur sem hverfist um íslenska torfbæinn og græna byggingalist. Þar munu gestir upplifa einstakan staðaranda, jafnframt því að skoða sýningar sem útskýra samhengi, þróun og tilbrigði íslenskra torfbæja með það að leiðarljósi að túlka aldagamlan og einstakan arf inn í samtímann með samþættingu, fræðimennsku, listrænni nálgun og varðveislu verkmenningar.
Opið hús verður milli kl. 14:00 og 17:00 laugardaginn 30. ágúst 2014. Boðið verður upp á léttar veitingar. www.islenskibaerinn.is.
Birt:
Tilvitnun:
Íslenski bærinn „Íslenski bærinn opnar“, Náttúran.is: 26. ágúst 2014 URL: http://nature.is/d/2014/08/26/islenski-baerinn-opnar/ [Skoðað:27. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: