Agronautas - Byggingar- vinnusmiðja
- Staðsetning
- Laugardalur - Grasagarður
- Hefst
- Miðvikudagur 27. ágúst 2014 09:30
- Lýkur
- Föstudagur 29. ágúst 2014 17:00
- Lýsing
Einnig hjá myndhöggvarafélaginu, Nýlendugötu 15, 101 Reykjavik
Tengt efni
Vistfræðilegar stoðir fyrir almenningsrými – Reykjavík
Agronautas - Nýjir lífshættir í þéttbýli
Opnar Vinnustofur sem stuðla að Sjálbærni.
Skipulagt af Pezestudio.
Jarðræktarar í samstarfi við Reykjavíkurborg og Grasagarð Reykjavíkur opna vinnusmiðju, þar sem litið er til vistfræðilegra grunnstoða og hvernig nýta megi þær sem uppsprettu eða tæki fyrir sjálfbærni í orku, tækni og matvælaframleiðslu.
Miklar breytingar eru að verða á náttúrulegu umhverfi í þéttbýli og huga þarf að afleiðingum þeirra. Borgir framtíðarinnar þurfa að leggja mat á áhrif sín á umhverfið. Til þess þarf, til dæmis, að endurskipuleggja hvernig rými er nýtt ásamt því að innleiða og samþætta nýjar leiðir til að draga úr auðlindanotkun.
Við teljum að þessi þróun sé ekki möguleg án kynslóðar sem tileinkar sér nýja lífshætti og þar sem borgarbúar taka sameiginlega ábyrgð á umhverfinu.
Opnar vinnustofur sem stuðla að sjálfbærni hafa það að markmiði að virkja íbúa í að nýta vistfræðilegar grunnstoðir í borgarrýminu til að skapa og móta í tilraunaskyni víðtæk og endurnýtanleg tól með sjálfbærni að markmiði.
KYNNING Mánudaginn 25. Ágúst klukkan 12:00 í Borgartúni 12-14 (Vindheimar 7th floor).
Vinnusmiðjan
Grasagarð Reykjavíkur
Vinnusmiðjan hefst 26. ágúst og er til 30. ágúst
Unnið er frá 9:30 til 12:30 og 13:30 til 17:00
Arkitektar, íbúar, trésmiðir, námsmenn og fólk með áhuga á sjálfbærni þróun hvatt til að mæta.
Aðgangur frír, staðfesting verður send eftir að eyðublað hefur verið fyllt út á ensku.
https://docs.google.com/forms/d/1jdmuCPQ-yrFnq16-ubR8LtKuHxQ6ZscpHA-XlH3dpIc/viewform
Frekari upplýsingar um verkefnið er hægt að nálgast í gegnum;
pezestudio.org
info@pezestudio.org
Birt:
Tilvitnun:
Laugargarður „Vistfræðilegar stoðir fyrir almenningsrými – Reykjavík“, Náttúran.is: 25. ágúst 2014 URL: http://nature.is/d/2014/08/25/ecological-infrastructures-publci-spaces-reykjavik/ [Skoðað:21. apríl 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: