Efni frá höfundi
Baráttan um Bitru heldur áfram 20.8.2009
Þann 19. mars 2008 var auglýst tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Ölfuss 2002-2014, sem náði m.a. til virkjanasvæða við Hverahlíð og Bitru. Fjöldi athugasemda barst við auglýsta tillögu og nær allar vegna fyrirhugaðs virkjanasvæðis við Bitru. Vegna aðstæðna sem þá voru, ákvað Sveitarfélagið Ölfus að fresta aðalskipulagi á því landsvæði sem tekur til Bitruvirkjunar og var svæðið auðkennt sérstaklega á skipulagsuppdrætti.Sveitarfélagið Ölfuss telur að vegna breyttra aðstæðna í þjóðfélaginu sé þörfin fyrir nýja atvinnusköpun brýnni en nokkru sinni ...
Hvað er einn dalur á Vestfjörður á milli vina?
Sem viðbrögð við auglýsingu hér að ofna hefur Lára Hanna Einarsdóttir hrundið af stað eftirfarandi ferli sem verður rakið hér að neðan, í réttri tímaröð:


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: