Norðulandaráð var að senda frá sér skýrslu um ágengar framandi tegundir og viðbrögð við þeim. Breytingar á loftslagi og ástandi sjávar hafa gríðarleg áhrif á vistkerfi og tegundir sækja fram en aðrar hörfa. Við Ísland er nærtækasta dæmið hvarf sandsíla og tilkoma makríls. Sem aftur hefur áhrif á afkomu tegunda sem lifðu á sandsílum t.a.m. sjófugla, bolfisk, hvali ...
Efni frá höfundi
Tilnefningar til náttúru- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2015 13.5.2015
Almenningur á Norðurlöndum hefur lagt fram tilnefningar til náttúru- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2015. Norðurlandaráði bárust yfir 40 ábendingar um sveitarfélög, borgir eða stofnanir sem hafa lagt mikið af mörkum til umhverfisverndar eða lagt sig fram á einhverju ákveðnu sviði umhverfismála. Þema verðlaunanna 2015 er losun gróðurhúsalofttegunda. Að sögn dómnefndar verða verðlaunin í ár veitt fyrirtæki, samtökum eða einstaklingi sem sett hefur fordæmi með þróun vöru eða uppfinningar eða öðrum skapandi aðgerðum sem stuðla að minni losun gróðurhúsalofttegunda á Norðurlöndum til ...
Almenningur á Norðurlöndum hefur lagt fram tilnefningar til náttúru- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2015. Norðurlandaráði bárust yfir 40 ábendingar um sveitarfélög, borgir eða stofnanir sem hafa lagt mikið af mörkum til umhverfisverndar eða lagt sig fram á einhverju ákveðnu sviði umhverfismála. Þema verðlaunanna 2015 er losun gróðurhúsalofttegunda. Að sögn dómnefndar verða verðlaunin í ár veitt fyrirtæki, samtökum eða einstaklingi sem sett ...


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: