Dr. Doug Gurian-Sherman mun fjalla um reynslu Bandaríkjamanna af notkun erfðatækni í landbúnaði. Dr. Gurian-Sherman er vísindastjóri matvæla- og umhverfisverkefnis Union of Concerned Scientists í Bandaríkjunum. Hann lauk doktorsprófi í plöntusjúkdómafræði frá Kaliforníuháskóla í Berkeley. Eftir það stundaði hann rannsóknir á sameindalíffræði hrísgrjóna og hveitiyrkja við tilraunastöð bandaríska landbúnaðarráðuneytisins í Kaliforníu. Hann starfaði sem vísindastjóri við Matvælaöryggissetrið (Centre for Food ...
Efni frá höfundi
Er erfðabreytt framleiðsla sjálfbær? 6.10.2013
Kynningarátak um erfðabreyttar lífverur stendur fyrir ráðstefnu með yfirsögninni „Er erfðabreytt framleiðsla sjálfbær?“ á Grand Hótel Reykjavík mánudaginn 7 október frá 13:30-16:40. Ráðstefnan er ókeypis og öllum opin.
Dagskrá:
- Kl. 13.30 Setning
- Kl. 13.35 Reynsla Bandaríkjanna af notkun erfðatækni í landbúnaði
Kynningarávarp: María Ellingsen, leikstjóri, formaður stjórnar Framtíðarlandsins
Frummælandi: Dr. Doug Gurian-Sherman, vísindafulltrúi á sviði matvæla- og umhverfismála, Union of Concerned Scientists - Kl. 14.25 Erfðavísindin, erfðatæknin og áhrif á heilsufar
Kynningarávarp: Gunnlaugur K. Jónsson ...
Kynningarátak um erfðabreyttar lífverur stendur fyrir ráðstefnu með yfirsögninni „Er erfðabreytt framleiðsla sjálfbær?“ á Grand Hótel Reykjavík mánudaginn 7 október frá 13:30-16:40. Ráðstefnan er ókeypis og öllum opin.
Dagskrá:
- Kl. 13.30 Setning
- Kl. 13.35 Reynsla Bandaríkjanna af notkun erfðatækni í landbúnaði
Kynningarávarp: María Ellingsen, leikstjóri, formaður stjórnar Framtíðarlandsins
Frummælandi: Dr. Doug Gurian-Sherman, vísindafulltrúi á sviði ...
Kynningarátak um erfðabreyttar lífverur krefst afturköllunar leyfis til ræktunar erfðabreyttra plantna í gróðrarstöðinni Barra
Til Umhverfisstofnunar
Í gær þriðjudaginn 10. janúar bárust þau tíðindi í fréttum Ríkisútvarpsins að þann dag hafi orðið umtalsvert tjón í gróðrarstöðinni Barra hf. nærri Egilsstöðum og að meðal þess hafi verið gróðurhús þau sem hýsa ræktun á erfðabreyttu byggi fyrir líftæknifyrirtækið Orf Líftækni hf. Fram kom að margar plötur höfðu fokið af húsunum sem standa ...
Að undanförnu hafa nokkrir fjölmiðlar birt pistla um auðlegð sem kunni að bíða Íslendinga ef þeir leyfi útiræktun á erfðabreyttu lyfjabyggi. Í kjölfar gagnrýnislausra viðtala við forráðamann líftæknifyrirtækis sem að ræktun þessari stendur birti Fréttablaðið forystugrein um ágæti „líftæknistóriðju”. Kallað var eftir því að tilskipanir sem Íslandi ber að taka upp samkvæmt EES samningnum verði túlkaðar frjálslega og að almannavaldið ...
Jeffrey Smith er einn kunnasti fyrirlesari heims um erfðabreytt matvæli og er tíður álitsgjafi stjórnvalda, almannasamtaka og fjölmiðla um ...
Á aðalfundi NSS í kvöld var samþykkt eftirfarandi ályktun:
Aðalfundur Náttúruverndarsamtaka Suðurlands hvetur umráðamenn lands á Suðurlandi og annars staðar til að lýsa lönd sín „svæði án erfðabreyttra lífvera“, þar með talda bændur og eigendur landbúnaðarsvæða, sveitarfélög sem fara með skipulagsvald, svo og stofnanir og samtök sem annast eða eiga nytjaland.
Kynningarátak um erfðabreyttar lífverur tekur gjarnan við yfirlýsingunum, www ...


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: