Stofan er sameiginlegt rými þar sem fjölskyldan slappar af og eyðir saman gæðastundum. Þar er lesið, hlustað á tónlist, horft á sjónvarp og tekið á móti gestum. Val á húsgögnum þarf því að vera í samræmi við fjölskyldustærð og ekki hvað sýst miðast við aldur barnanna í fjölskyldunni.

Val húsgagna getur skipt allan heiminn máli, þ.e. ef að þau eru úr regnskógarviði. Eyðing regnskóganna er á ábyrgð okkar allra. Ef eftirspurnin minnkar til muna, minnkar eyðing regnskóganna einnig til muna. Þannig getur lítil kaupákvörðun haft svo mikið að segja.

Annað umhverfismál „orkunotkun“ er annað stóra málið í stofunni. Sjónvarpið eyðir yfirleitt mestri orku. Nýju flatskjáirnir eyða t.d. gífurlegri orku, miklu meiri en forverar þeirra túpuskjáirnir. Lýsing og þá sérstaklega val á ljósaperum skiptir einnig verulegu máli.

Birt:
25. júní 2007
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Stofan“, Náttúran.is: 25. júní 2007 URL: http://nature.is/d/2007/06/25/stofan/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 16. maí 2014

Skilaboð: